Það er fagnaðarefni að fjármálaráðherra skuli hafa lagt fram fjármálafrumvarp með hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn í mörg ár. Ráðgert er að fjárlögin skili fimm milljarða rekstrarafgangi á ríkissjóði.Ekki kom það mikið á óvart að einhverjir fulltrúar stjórnarandstöðunnar skuli finna frumvarpinu allt til foráttu. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur jafnan þann háttinn á að vera einfaldlega á móti öllu sem kemur frá ríkisstjórninni, hverju nafni sem það nefnist.
Orðið á götunni: Blásið til orrustu í Sjálfstæðisflokknum – Ásdís leggur á ráðin