Rúmlega 1.600 höfðu skrifað undir áskorun upp úr klukkan sjö í morgun þess efnis að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segi af sér sem utanríkisráðherra og að Viðreisn hætti þátttöku í ríkisstjórn.
Sigfús Aðalsteinsson, forsvarsmaður Íslands – þvert á flokka, stofnaði í gær undirskriftasöfnun á Ísland.is. Þar er skorað á Þorgerði Katrínu að segja þegar af sér ráðherradómi og leiða Viðreisn úr ríkisstjórn.
Í rökstuðningi með áskoruninni segir að ríkisstjórnin hafi þvert á fyrri yfirlýsingar gert ESB-málið að sínu helsta baráttumáli.
„Nú hefur þjóðin hafnað málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar. Sú niðurstaða verður að hafa pólitískar afleiðingar. Það gengur ekki að segjast treysta þjóðinni fyrir ákvörðuninni en virða síðan niðurstöðu hennar að engu.“
Þorgerður Katrín og Viðreisn hafi leitt þetta og verði nú að axla ábyrgð með því að yfirgefa ríkisstjórnina og kalla eftir þingrofi og kosningum.
Forystukonur ríkisstjórnarinnar hafa sagst ætla að virða niðurstöðuna með því að hefja ekki á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ekki hefur verið ákveðið hvort umsóknin frá 2009 verði dregin til baka.
Ríkisstjórnin kynnti fjárlagafrumvarp sitt í gær og kynnir þingmálaskrána í dag.