Meira en helmingur lækna á Landspítalanum starfar þar í hlutastarfi og hlutfallið er enn hærra á Sjúkrahúsinu á Akureyri.Þetta kemur fram í svari Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Helga Pálmasonar þingmanns Flokks fólksins.Sigurður ósakaði eftir upplýsingum um fjölda lækna sem starfa á sjúkrahúsunum tveimur, í hvaða sérgrein þeir starfa og hversu hátt hlutfall þeirra er í fullu starfi. Óskaði hann bæði eftir upplýsingum um hvernig staðan í þessum efnum væri nú og hver hún hefði verið fyrir ári síðan.
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum í hlutastarfi - Enn hærra hlutfall á Akureyri