Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og barna- og menntamálaráðherra, halda blaðamannafundinn í Ráðherrabústaðnum.
Fundurinn hefst klukkan níu og verður Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður Vísis, á staðnum.
Fjárlagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra var kynnt í gær þar sem gert er ráð fyrir fimm milljarða afgangi. Ráðherrann sagði að um væri að ræða fyrstu hallalausu fjárlögin frá árinu 2018.