Nú er vitað að níu fórust í tveimur öflugum sprengingum í herstöð í borginni Viacha um þrjátíu kílómetra frá La Paz, höfuðborg Bólivíu, á föstudaginn var. Allir hinna látnu eru hermenn, liðsforingi og átta ungir menn að sögn varnarmálaráðuneytisins.
Af þeim 84 sem slösuðust liggur 31 enn á sjúkrahúsi samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytisins. Fimm hermanna er enn saknað. Leit stendur enn yfir og í gær fjarlægðu slökkviliðsmenn og björgunarsveitir heilmikið brak undir vökulu auga herlögreglunnar.
Sprengiefni sem hafði verið gert upptækt var geymt í herstöðinni og forsetinn Rodrigo Paz segir það sem eftir var hafa verið flutt annað í öryggisskyni. Flestir þeirra 240 hermanna sem hafast við í herstöðinni voru við skyldustörf annars staðar þegar atvikið varð.
Ekki er vitað hvað olli sprengingunni þótt málið sé rannsakað sem manndráp. Rannsókn er einnig hafin til að kanna hver ber ábyrgð á því hvernig sprengiefnið var geymt og hversu umfangsmikið það var.