Háværar sprengingar kváðu við víðs vegar um úkraínsku höfuðborgina Kyiv í kvöld og nótt að sögn fréttaritara AFP í borginni. Hann segist einnig hafa séð elda loga og reyk stíga til himins.
Rússlandsher hóf að nýju loftárásir á Úkraínu eftir þriggja daga hlé vegna heimsóknar bandarísku erindrekanna Steve Witkoff og Jared Kushner til höfuðborga beggja ríkja. Þeir lögðu friðaráætlun Bandaríkjaforseta fyrir ráðamenn.
Hermálayfirvöld í Kyiv tilkynntu um yfirvofandi eldflaugaárás og brýndu borgarbúa til að leita sér skjóls. Yfirvöld segja eldflaugar hafa hæft byggingar í Kyiv sjálfri og útborgunum Boryspil og Fastiv.