Magnús Árni Skjöld Magnússon prófessor við Háskólann á Bifröst og formaður Evrópuhreyfingarinnar segir að ugg hafi sett að sér eftir umfjöllun og umræðu Morgunblaðsins um styrk sem hann hlaut frá Evrópusambandinu. Segir Magnús að framganga fréttamanns blaðsins og viðmælanda hans beri vott um tilraun til óttastjórnunar og að nú sé ætlunin að leita hefnda gegn þeim sem stóðu í stafni Já-hreyfingarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar, þann 29. ágúst síðastliðinn. Blaðamaðurinn og viðmælandinn vísa hins vegar ummælum Magnúsar alfarið á bug.
Ugg setur að Magnúsi - Telur stund hefndarinnar gegn Já-hreyfingunni runna upp