Logi bjargar Heimildinni frá gjaldþroti með ríkisfé

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Logi Einarsson fjölmiðlaráðherra breytti lögum um ríkisstyrk til fjölmiðla gagngert til að bjarga Heimildinni frá gjaldþroti. Stærsti hluthafinn er fyrrum gjaldkeri Samfylkingar, Vilhjálmur Þorsteinsson.
Í skýrslu stjórnar útgáfunnar, sem fylgir með ársreikningi, er viðurkennt að Heimildin er gjaldþrota, á ekki fyrir skuldum. Vegna tapreksturs lögðu eigendur rekstrinum til fjármagn sem þeir innheimta ekki. Skýrslan segir:
Skuldir félagsins eru að stærstum hluta við eigendur þess og munu þeir ekki ganga að félaginu. Stjórn og stjórnendur félagsins telja því að félagið sé rekstrarhæft og gjaldfært þrátt fyrir taprekstur á árinu 2025 og neikvætt eigið fé í árslok 2025 (feitletr. pv)
Fjármagn frá eigendum er ekki nóg til að halda Heimildinni á floti. Pólitíska aðgerð þurfti til. Þar kemur Logi Samfylkingarráðherra til sögunnar. Hann breytti lögum um ríkisstyrk til fjölmiðla í þágu Heimildarinnar. Blaðamannafélag Íslands kom einnig við sögu í plottinu. Varaformaður BÍ er Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Heimildinni. Hann er bróðir Ingibjargar Daggar ritstjóra útgáfunnar og mágur framkvæmdastjórans Jóns Trausta Reynissonar. Þau hjónin eru stærstu hluthafarnir ásamt Vilhjálmi Þorsteinssyni fyrrum gjaldkera Samfylkingar. Pólitík og persónulegir hagsmunir fléttast saman er ráðherra veitir ríkisfé í gjaldþrota útgáfu.
Prentútgáfa Heimildarinnar kom út 20 sinnum á ári. Útgáfutíðnin, 20 á ári, var skilyrði prentmiðla á landsvísu að fá ríkisstyrk. Heimildin fær um 80 milljónir árlega úr ríkissjóði. Taprekstur Heimildarinnar leyfir ekki prentun 20 sinnum á ári. Ríkisstyrkurinn var í hættu. Pólitísk afskipti þurfti til að bjarga útgáfunni frá gjaldþroti.
Í vor voru lög um ríkisstyrk til fjölmiðla endurskoðuð. Eigendur voru í samtali við ráðuneyti Loga Einarssonar Samfylkingarráðherra. Úr varð að blaðamannafélagið riði á vaðið með formlegum hætti. Í umsögn Blaðamannafélagsins segir m.a.:
Áfram er gerð krafa í frumvarpinu um að prentmiðlar komi út að lágmarki 20 sinnum á ári en staðbundnir fjölmiðlar 12 sinnum. Í ljósi mikillar hækkunar á prentkostnaði á undanförnum árum er lagt til að sama skilyrði gildi fyrir alla prentmiðla, þannig að útgáfa þeirra þurfi að vera að lágmarki 12 sinnum á ári.
Heimildin er eini prentmiðillinn sem þarf á þessari breytingu að halda. Logi Samfylkingarráðherra og flokksbróðir Vilhjálms aðaleiganda Heimildarinnar, breytti lagafrumvarpinu til samræmis við fjárhagsþarfir útgáfunnar. Í nýsamþykktum lögum er sérstakt ákvæði fyrir Heimildina: ,,Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 12 sinnum á ári.“ Áður þurfti að gefa út 20 sinnum á ári til að fá ríkisstyrk.
Nú getur Heimildin snarlækkað prentkostnað en samt fengið um 80 milljónir árlega frá ríkinu. Sérákvæði í lögum í þágu Heimildarinnar og fjárhagslegra hagsmuna samfylkingarmanna.
Heimildin beið skipbrot er fjórir blaðamenn útgáfunnar, sem áður kom út í tvíritinu Stundin og Kjarninn, urðu sakborningar í byrlunar- og símamálinu. Eftir faglegt þrot blasti við fjárhagslegt gjaldþrot. Áskrifendum fækkaði og lesendur hættu að lesa netútgáfuna. Við það féllu auglýsingatekjur. Heiðarlegt fólk leggur ekki lag sitt við fjölmiðil er stundar lögbrot, siðleysi og undirferli. Logi Einarsson ráðherra og fyrrum formaður Samfylkingar kom til bjargar á ögurstundu, breytti lögum og afhenti Heimildinni ríkisfé á silfurfati. Orðið spilling hefur verið nefnt af minna tilefni.