Donald Trump Bandaríkjaforseti birti kort af Bandaríkjunum, Kanada, Mið-Ameríku, Grænlandi og Íslandi á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, þar sem öll ríkin eru þakin bandaríska fánanum og litum hans.
Enginn texti fylgir færslunni af kortinu, sem er hér fyrir neðan.
Myndin af kortinu er ein af röð mynda sem Trump birti núna síðdegis. Flestar eru þær af ríkinu Nýja Mexico (New Mexico) sem forsetinn vill endurnefna sem Nýju Ameríku (New America).
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bandaríkjaforseti vill breyta eða breytir nöfnum. Í síðasta mánuði undirritaði hann tilskipun þess efnis að nafni Ontario-vatns yrði breytt í Ameríkuvatn. Á fyrsta degi í embætti á síðasta ári fyrirskipaði hann að Mexíkóflóa yrði breytt í Ameríkuflóa.
Á laugardaginn var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna ályktun um að veröldin hætti að nota Mercator-heimskortið. Í staðinn var tekið upp nýtt kort, jafnaðarkortið svokallaða, sem sýnir lönd heimsins í réttum hlutföllum.
Á nýja kortinu eru hins vegar ríki við Norður-Atlantshaf, eins og Bandaríkin, Kanada, Grænland og Ísland minni og fyrirferðarminni en á Mercator-heimskortinu.