Tekjur og gjöld ríkissjóðs ná jafnvægi í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 og á heildarafkoman að jákvæð um 5 milljarða króna. Langvinnur hallarekstur ríkissjóðs verður þar með stöðvaður og afkoman jákvæð í fyrsta sinn í tæpan áratug. Uppsafnaður halli ríkisins frá 2019 er um 866 milljarðar króna, þá sá halli helst rætur sínar að rekja til Covid og eldgosa á Reykjanesi. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagráðherra, kynnti frumvarpið í morgun en það verður lagt fram á Alþingi við þingsetningu á morgun.
Fast skotið á fjárlagafrumvarpið: „Þetta er gjaldþrota hugmyndafræði“