Eins og fram hefur komið kynnti Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár í morgun á blaðamannafundi. Hann boðar jákvæða afkomu upp á fimm milljarða en uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 er 866 milljarðar króna. Daði sagði stærsta viðfangsefni ríkisstjórnarinnar að ná jafnvægi í ríkisfjármálum.
„Síðasta haust boðaði forsætisráðherra verðmætasköpunarhaust. Það varð að vaxtahækkunarvori og nú stefnir í verðbólguvetur,“ skrifar Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins í tilkynningu á samfélagsmiðlum vegna frumvarpsins.
Hún bendir á að kjörtímabilið sé nánast hálfnað. Hún segir frumvarpið boða þyngri byrðar á bæði fjölskyldur og fyrirtæki. Til viðbótar við skattahækkanir sem ríkisstjórnin hafi þegar ráðist í eigi nú að sækja nærri 23 milljarða með nýjum sköttum og álögum og kílómetragjaldið eigi að hækka um tæp sextán prósent.
„Hallalaus fjárlög eru auðvitað mikilvægt markmið. En hærri álögur á fólkið í landinu koma ekki í stað varanlegs aðhalds í ríkisrekstri. Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar.Heimili og fyrirtæki bíða enn eftir efndum á loforðum um lægri verðbólgu og vexti. Ég vona svo sannarlega að þetta fjárlagafrumvarp skili þeim efndum. Því miður bendir allt til þess að svo verði ekki.“