Hélt alls­herjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ - Vísir

Hélt alls­herjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ - Vísir

Hélt alls­herjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ - Vísir

Rebecca er 34 ára gömul og gifti sig fyrir þremur árum. Síðasta vetur áttaði sig hún á því að hún vildi skilja.

„Það var í desember sem ég ákvað að skuldbinda mig að fullu við sjálfa mig og sótti um skilnað. Það var mjög auðvelt, þú getur bara gert það á netinu inni á Ísland.is.“

Vildi fagna frelsinu með bestu vinunum

Hún vildi aðeins hrista upp í norminu og fagna tímamótunum með um fjörutíu af sínum bestu vinum.

„Ef þú spyrð vini mína myndu þeir segja að skipulag fyrir þessa veislu hafi byrjað á brúðkaupsdaginn minn. En ég byrjaði að skipuleggja hana af alvöru í febrúar síðastliðnum, þegar ég fór að heimsækja vini mína í Brooklyn, New York. Þetta heppnaðist svo vel, ég hef ekki hlegið svona mikið og dansað svona mikið í langan tíma.“

Rebecca skálar við góða vinkonu í skilnaðarveislunni.Aðsend

Rebecca var að flytja til Glasgow til að stunda meistaranám við ritlist. Undanfarnar vikur hafa farið í undirbúning fyrir flutninga og því var hún ekki að ofhugsa skipulag fyrir veisluna.

„Ég hafði í raun ekki tíma til að gera neitt annað en að klæða mig og mæta. Ég hélt veisluna á Pablo Discobar, í stóra karókíherberginu þeirra. Ég elska andrúmsloftið þar og vinkona mín Cat gaf mér líka rausnarlega fimmtíu þúsund króna gjafabréf fyrir drykkjum á barnum fyrir gesti, þó það hafi klárast á innan við klukkutíma,“ segir Rebecca kímin en hún var harðákveðin í því að þema kvöldsins ætti að vera gleði.

„Það mikilvægasta var að gestirnir mínir skemmtu sér. Margir þeirra höfðu verið í brúðkaupinu mínu sem var líka mjög skemmtileg veisla, ef við gleymum því hvernig það endaði, og þeir höfðu allir staðið með mér og stutt mig á einn eða annan hátt í gegnum erfiðasta hluta skilnaðarins. Ég vildi að allir fengju að upplifa ákveðna hreinsun og fagna þessu gleðilega tilefni með mér, að ég er frjáls.“

Það skipti mestu máli fyrir Rebeccu að allir skemmtu sér vel.Aðsend

Hádramatískt og bráðfyndið

Rebecca sótti innblástur fyrir veisluna úr ýmsum áttum, þar á meðal skemmtilegum og gleðilegum birtingarmyndum skilnaðar úr poppmenningu. 

Vinkona hennar Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir var veislustjóri en hún var einmitt líka veislustjóri í brúðkaupi hennar fyrir þremur árum.

Hekla sló í gegn sem veislustjóri.Aðsend

„Hún skipulagði frábæra dagskrárliði. Í fyrsta lagi báðum við alla sem mættu að senda inn karókílag sem þeir vildu tileinka skilnaðinum mínum, svo raðaði Hekla þeim öllum upp á dramatískan hátt yfir kvöldið.

Sömuleiðis notaði hún gamla trúlofunarhringinn minn til að fara á skeljarnar og biðja mig um skilnað. Því næst lét hún alla hreinsa brúðarkjólinn minn með því að blása á hann. Annað sem hún gerði var að láta alla endurskrifa ljóðið úr gamanmyndinni 10 Things I Hate About You og svo las ég það upphátt. Það var bráðfyndið.“

Karókí, ljóðalestur og fleira fjör einkenndi kvöldið.Aðsend

Þar á eftir steig Salka Gullbrá vinkona Rebeccu á stokk með svokallað roast eða grill.

„Það var eins konar yfirferð á grillinu sem hún hélt í brúðkaupinu, sem var mjög fyndið og blíðlegt, en fyrrverandi eiginmaður minn og vinir hans urðu mjög, mjög móðgaðir yfir því. Þegar hún fór yfir það aftur í skilnaðarveislunni minni var ég næstum því að míga í mig úr hlátri.“

Þá hélt vinkona mín Karólína Rós Ólafsdóttir bráðfyndna predikun og Hekla lét alla gagnkynhneigðu karlmennina í salnum sverja eið um hvernig þeir ættu að vera góðir makar við eiginkonu eða kærustur sínar. Sumum strákanna fannst það besti hluti kvöldsins. Ég held að Hekla myndi slá í gegn í steggjapartíum.“

Strákarnir hér að sverja eið.Aðsend

Í brúðarkjólnum með sérhannaðan skilnaðarborða

Fyrri hluta kvölds klæddist Rebecca brúðarkjólnum sínum, sem Adam Halaka vinur hennar hannaði.

„Hann er einstaklega hæfileikaríkur listamaður og hannaði borða fyrir mig yfir kjólinn en hugmyndin að borðanum og kórónunni sem ég var með kom úr fegurðarsamkeppnum og gæsapartíum. Við Adam fórum með hann út á lífið í Brooklyn í febrúar og ég tók hann líka til Fíladelfíu í júlí til að fagna með vinum okkar þar á báðum stöðum.

Þegar við gengum niður götuna til að hitta vini okkar í báðum borgum kom svo margt fólk, þó aðallega konur, upp að mér til að óska mér til hamingju, sögðu að þetta hefði verið svo gleðilegt í þeirra eigin lífi og fleira slíkt. 

Það lyfti mér rosalega upp og veitti mér stuðning, að heyra allt þetta ókunnuga fólk segja þetta við mig,“ segir Rebecca og bætir við að það sé virkilega erfið ákvörðun að velja skilnað þótt hún hafi verið nauðsynleg.

Rebecca og Adam eru góðir vinir en hann hannaði borðann.Aðsend

„Hér er mitt ráð varðandi skilnað almennt: Það er aldrei of seint að fá skilnað og það er aldrei of snemmt heldur. Ef þú ert í vafa fyrir brúðkaupið, ef þú ert að hugsa:, „Kannski ætti ég að hætta við“ gerðu það þá.“

Það var ógleymanlegt fyrir Rebeccu að ganga um götur New York borgar með borðann.Aðsend

Verra en að hlaupa maraþon

Hún segir að ástin og gleðin standi án efa upp úr núna eftir krefjandi tíma.

„Það var ofboðslega gaman að halda skilnaðarveisluna og vera Fröken Skilnaður 2026, svo kannski var þetta allt þess virði,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Nei grín. En ég hef verið að segja við vinkonur mínar, með eiginmenn þeirra rétt hjá, að það sé hægt að breyta tölunum á borðanum mínum. Svo ef þær vilja verða Fröken Skilnaður 2027 eða einhvern tíma síðar þá skal ég með glöðu geði afhenda borðann og kórónuna.“

Rebecca hefur sagt vinkonum sínum að hún muni með glöðu geði lána þeim borðann ef þær þurfa á honum að halda.Aðsend

Vináttan er að hennar sögn það verðmætasta sem hún getur hugsað sér. 

„Ég hefði ekki komist í gegnum þetta án vina minna og allrar ástarinnar og stuðningsins sem þeir veittu mér, sérstaklega þar sem fjölskylda mín býr öll í Ameríku, og ég er þeim ævinlega þakklát, hverjum og einum. 

Að komast í gegnum eitthvað svona er jafnvel hræðilegra en ég ímynda mér að það sé að æfa fyrir og hlaupa maraþon. Svo ég er líka mjög stolt af sjálfri mér og hamingjusamari en ég hélt nokkurn tíma að væri mögulegt,“ segir hún brosandi að lokum.

Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir til viðbótar frá veislunni:

Rebecca ávarpar gesti.Aðsend
Glæsileg og glitrandi.Aðsend
Vinir Rebeccu tóku dramatísk karókílög, þar á meðal fatahönnuðurinn Berglind Ósk Hlynsdóttir. Aðsend
Innlifunin var mikil.Aðsend
Mikið drama en mikið fjör í karókí.Aðsend
Rebecca tók nokkur lög með vinum.Aðsend
Alvöru metnaður á sviðinu.Aðsend
Vinkonurnar sungu beint til skilnaðar-dömunnar.Aðsend
#allsherjar #frjáls #hélt #skilnaðarpartý #vísir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262931496d/helt-alls-herjar-skilnadarparty-eg-er-frjals-

📰 Aðrar fréttir

Saman í 11 ár en búa ekki saman - Þetta er ástæðan
📅 22.10.2026 👁️ 1
Saman í 11 ár en búa ekki saman - Þetta er ástæðan
Leikkonurnar Holland Taylor (83) og Sarah Paulson (419 hafa verið saman í 11 ár, en hafa aldrei búið saman. Taylor, sem er þekktust fyrir hlutverk sit...
Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki
📅 22.10.2026 👁️ 1
Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki
Það er alltaf hátíð þegar íslenskir stjórnmálamenn taka fyrstu skóflustunguna að nýrri stórframkvæmd.Ráðherrann mætir, ljósmyndararnir smella af og fr...
Segir flugeldasöluna ekki í hættu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Segir flugeldasöluna ekki í hættu - Vísir
Björgunarsveitin hefur óskað eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu við húsnæði hennar að Hvaleyrarbraut 32. Sveitin segir fyrirhuga...
Framsóknarmenn vilja að leyft verði að skjóta álftir – „Við óbreytt ástand verður ekki unað“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Framsóknarmenn vilja að leyft verði að skjóta álftir – „Við óbreytt ástand verður ekki unað“
Samkvæmt nýrri þingsályktunartillögu Þórarins Inga Péturssonar, Framsóknarmanns, verður leyft að veiða álftir á ákveðnu tímabili. En álftir eru friðað...
Til­kynning um kæru ó­skýr og Bandero fer ekki fet - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Til­kynning um kæru ó­skýr og Bandero fer ekki fet - Vísir
Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Vesturlands, sem kvað upp frávísunarúrskurð í máli Atlantic Marine Industries LLC á hendur Hval Hf, vegna kyrrsetninga...
Mál sonar þing­mannsins komið til héraðssaksóknara - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Mál sonar þing­mannsins komið til héraðssaksóknara - Vísir
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Gæsluvarðhald mannsins rennur út í dag en segir Karl Ingi að an...
Alma vill bæta eftirlit með lyfjagjöf til eldra fólks
📅 22.10.2026 👁️ 1
Alma vill bæta eftirlit með lyfjagjöf til eldra fólks
Heilbrigðisráðherra vill bæta eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks. Hún segir mikilvægt að leita orsaka og reyna önnur úrræði hjá öldruðum áður en...
„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ - Vísir
„Þetta er stórkostlegt afrek, öll þessi vinna sem hefur farið fram í starfsnefnd hjá embætti landlæknis og góð vinna og að mér skilst í fyrsta skipti ...
Trump ordered to answer questions under oath in BBC lawsuit
📅 22.10.2026 👁️ 1
Trump ordered to answer questions under oath in BBC lawsuit
Trump is suing the BBC over an episode of Panorama that edited together two different sections of a speech he gave in 2021.
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar Fréttin22. október 2026Erlent, Mannréttindi, Trúm...
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
📅 22.10.2026 👁️ 3
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll Fréttin22. október 2026Bólusetningar, Erlent...
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Skaddaður á höndunum og alla­vega þrír dagar eftir - Vísir

Streeting: Prepare for supply chain disruption from cyber or climate emergencies
📅 22.10.2026 👁️ 1
Streeting: Prepare for supply chain disruption from cyber or climate emergencies
The defence secretary warned the public and businesses needed to think about how they would cope with natural disasters and cyber attacks.
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfð...
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Newborn twins fight for survival as conflict fuels Yemen's hunger crisis
📅 22.10.2026 👁️ 1
Newborn twins fight for survival as conflict fuels Yemen's hunger crisis
Raghad and Raad's family had to flee their home on foot because of the fighting between pro-government forces and the Houthis.
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
📅 22.10.2026 👁️ 3
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Öflugur jarðskjálfti af stærð 7...
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi...
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafræ...
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem G...
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðr...
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
📅 22.10.2026 👁️ 3
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, gæti þurft að bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni sem hann sjálfur boðaði til að rannsaka pakis...
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
📅 22.10.2026 👁️ 3
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
Pentulive er komið í loftið í sjötta sinn hjá finnska ríkissjónvarpinu Yle og viðbúið er að áhorfsmet falli. Yfir sex milljónir hafa þegar horft á Pen...
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“ Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Júrí Úshakov. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Xi Ji...
Civil servant who juggled five jobs 'wasn't thinking straight'
📅 22.10.2026 👁️ 1
Civil servant who juggled five jobs 'wasn't thinking straight'
Kashim Chowdhury is accused of fraudulently juggling multiple public sector jobs.
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 4
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 3
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 3
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 4
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Caroline Flack's brother never recovered, inquest hears
📅 22.10.2026 👁️ 1
Caroline Flack's brother never recovered, inquest hears
Paul Flack was "everyone's favourite person" but this "took its toll", an inquest hears.
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 4
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 4
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 4
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1

Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 3
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...