Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, bauð ráðherrum í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur á Bessastaði á ríkisráðsfund. Forsetinn og ráðherrarnir mynda ríkisráð Íslands. Á morgun verður Alþingi sett líkt og áður segir en ríkisstjórnin kynnti í morgun fjárlagafrumvarp sitt fyrir árið 2027.
Á ríkisráðsfundum bera ráðherrarnir undir forseta öll lög, bráðabirgðalög og mikilvægar stjórnarráðstafanir. Þar má nefna lagafrumvörp, tillögur um að kveða saman Alþingi, tillögur um breytingar á embættum sem forseti veitir og samninga við erlend ríki sem þurfa staðfestingar ríkisstjóra.
Eins og áður segir er þing sett á morgun og er venjan sú að ríkisráðið fundi fyrir þingsetninguna. Stefnuræða forsætisráðherra verður flutt á miðvikudag. Til stendur að hefja umræðu um fjárlagafrumvarpið á fimmtudag.