Lokunin varir á milli klukkan tíu að morgni og til fjögur síðdegis en laga þarf malbikið á Hellisheiði frá Reykjavík til Hveragerðis. Lokað verður í báðar áttir meðan á framkvæmdunum stendur og er ökumönnum bent á að fara hjáleiðina um Þrengslin.
Hvalfjarðargöngunum verður lokað aðfaranætur 7., 8. og 9. september klukkan 23 til 06:30. Fylgdarakstur verður um göngin meðan á framkvæmdunum stendur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni en hægt er að fylgjast með nýjustu vendingum af umferðinni á vefsíðu hennar, umferðin.is.