Oulu í Finnlandi er með hreinasta loftið í Evrópu samkvæmt tölum Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA) sem voru uppfærðar í síðasta mánuði. Á Eftir henni koma Uppsala og Umeå í Svíþjóð.
Alls eru sex finnskar borgir á listanum, tvær sænskar og ein eistnesk á topp tíu yfir mestu loftgæðin og vermir Reykjavík tíunda sætið.
Faro í Portúgal er efst borga utan Norðurlanda og Eistlands á listanum í tuttugasta og fimmta sæti.
Gæðunum misskipt
Á hinum endanum vermir Pabianice, rúmlega 65 þúsund manna borg í miðju Póllands, botnsætið. Borgir í sunnan- og austanverðri Evrópu eru almennt neðarlega á listanum. Pólland, Rúmenía og Ítalía eiga þannig margar þeirra sem eru í neðstu sætunum.
Loftgæðum er verulega misskipt innan Evrópu. Þannig eru þau mun betri í norðan- og vestanverðri álfunni en í Suður- og Austur-Evrópu.