Volker Turk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segist skelfingu lostinn yfir fréttum um að sjálfvirkir drónar, sem Rússar skutu á loft, hafi drepið þrjá Úkraínumenn í síðasta mánuði.
Hann ávarpaði Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í dag og lýsti áhyggjum af þróuninni. Turk tók undir kröfur um tafarlaust bann við vopnum sem geti kostað mannslíf án aðkomu manna.
Dróni valdi sjálfur skotmark
The New York Times greindi frá því 24. ágúst að rússneskur dróni hefði drepið þrjá Úkraínumenn í árás í úkraínsku borginni Zaporizhzhia 6. júlí. Dróninn leit út eins og líkan af flugvél. Hann flaug að bensínstöð þar sem hann brotlenti á vegg og sprakk. Sprengjubrot úr drónanum urðu þremur að bana.
Þetta var þó ekki dróni eins og hefur verið notaðar í fjölda loftárásum Rússa á Úkraínu undanfarna mánuði. Honum var stýrt af gervigreind, ekki manneskju, og hann var forritaður til þess að fljúga að þessari bensínstöð.
Þegar dróninn kom nálægt bensínstöðinni valdi hann skotmark af sjálfsdáðum, líklega gaskúta, að sögn sérfræðinga og embættismanna innan úkraínska hersins sem The New York Times ræddi við.
Dróninn var líklega þjálfaður til þess að bera kennsl á gaskúta og gera árás á þá.
Aukinn þrýstingur á að setja reglur um sjálfvirk vopn
Þessi þróun hefur lengi verið í kortunum í stríðinu í Úkraínu, það er að segja notkun sjálfvirkra dróna.
Turk sagði í morgun að hann væri skelfingu lostinn að heyra fréttir af fullkomlega sjálfvirkum drónum sem hafi orðið manneskjum að bana. Hann benti einnig á að Úkraína væri notuð til að prófa slík vopn á vettvangi.
Alþjóðasamtök hafa þrýst á að reglur verði settar um banvæn sjálfvirk vopn, sem oft eru kölluð „morðvélmenni“.
„Ég tek undir kröfur um tafarlaust bann við vopnum sem geta kostað mannlíf, án viðkomu manna,“ sagði Turk.
Í nóvember taka aðildarríki Sameinuðu þjóðanna afstöðu til þess hvort hefja eigi formlegar samningaviðræður um alþjóðlegan samning um reglur sjálfvirkra vopna.