Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, verða við útför Haraldar Noregskonungs á miðvikudaginn. Yfirvöld í Noregi ákváðu í öryggisskyni að birta ekki lista yfir þá þjóðarleiðtoga sem sækja útförina.
Halla minntist Haraldar þegar hann lést 28. ágúst og rifjaði upp kynni þeirra.
„Það var svo fallegt í hans fari. Við vorum að ræða flókin mál, flókna stöðu í heiminum, áskoranir, en einhvern veginn var stutt í brosið og hláturinn og mennskuna og ég fann það svo hvað hans einlæga ást á sinni þjóð var honum alltaf efst í huga. Ég fann líka fyrir þessari ást í garð Íslendinga,“ sagði Halla.