Robyn hefur verið gríðarlega vinsæl í popp-og danstónlistarsenunni í áratugi og hennar þekktasti smellur er án efa Dancing On My Own frá árinu 2010. Undanfarna mánuði hefur lagið aftur risið í vinsældum hjá yngri kynslóðum en það var fyrirferðamikið í Netflix-kvikmyndinni Voicemails for Isabelle sem kom út í sumar og fór beint í fyrsta sæti á vinsældarlista streymisveitunnar.
Robyn er nú á tónleikaferðalagi og tróð upp í tónleikahöllinni Barclays Center í Brooklyn, New York um helgina. Laufey var meðal áhorfenda ásamt ástralska tónlistarmanninum Troy Sivan og bandarísku söngkonunni Clairo.
Robyn birti myndasyrpu á Instagram bæði af tónleikunum og eftirpartýi með stjörnunum og virtust hún og Laufey hinir mestu mátar.