Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands hefur svarað fullyrðingum fyrrum samkennara síns Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að hann hefði þegið laun frá Evrópusambandinu. Bendir Baldur á að í frétt Morgunblaðsins, sem rituð er af Stefáni Einari Stefánssyni, þar sem rætt er við Hannes um þessi meintu laun sé tekið fram að um hafi verið að ræða rannsóknarstyrk úr sjóðum Sambandsins sem sé ekki ætlaður fyrir launagreiðslur. Þar með hafi blaðið leiðrétt ósannindi Hannesar.Baldur skrifar í færslu á Facebook:
Baldur svarar fyrir sig og segir Morgunblaðið sýna fram á ósannindi Hannesar