Þá kemur fram í tilkynningu að það geti skapast varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taki á sig mikinn vind.
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að það muni draga hægt úr vindi með kvöldinu eftir því sem lægðin fjarlægist suðausturströndina.
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir hvassast við Öræfi og Höfn á Hornafirði.
Viðvörunin er í gildi til klukkan 16 í dag. Í tilkynningu Vegagerðarinnar er þó bent á að ekki muni lægja almennilega fyrr en í kvöld.