Clinton notaðist þar við túspenna til að skrifa stórt núll í miðjunni með Al Gore varaforseta sér við hlið. Í morgun var það Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sem skrifaði núllið með tússpenna á spjald sem stóð á „Halli ríkisins árið 2027“ sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hélt á. Neðst á spjaldinu stóð „Hallalaus fjárlög“.
Bak við núllið er frumvarp sem gerir ráð fyrir um fimm milljarða króna afgangi. Jafnvæginu á að ná með 44 milljarða aðhaldi í ríkisrekstrinum og 22,6 milljarða tekjuaðgerðum. Um 200 ríkisstöðugildi eiga að hverfa og meðal tekjuaðgerða eru aukinn bankaskattur, meiri gjaldtaka í ferðaþjónustu, kílómetragjald, hærri virðisaukaskattur á baðlón og lægri endurgreiðslur vegna íbúðarhúsnæðis.
Uppstillingin var nær sú sama í Hvíta húsinu 2. febrúar 1998. Þá bað Clinton Al Gore um tússpenna og skrifaði stórt núll á spjald merkt „1999 Federal Budget Deficit“. Fyrir neðan stóð „A Balanced Budget“.
Atriðið var hluti af kynningu Clintons á fyrstu hallalausu fjárlögum Bandaríkjanna í þrjá áratugi. Núllið táknaði engan fjárlagahalla þótt frumvarpið gerði í raun ráð fyrir 9,5 milljarða dala afgangi.