Marglyttur herjuðu á laxa í eldiskvíum Kaldvíkur í Reyðarfirði um helgina. Í frétt Austurfréttar, sem greindi fyrst frá, segir að marglytturnar geti valdið ýmiss konar vandamálum í eldinu. Þær brenni fiskinn og skapi á honum sár og geti dregið úr súrefnismagni. Skaði þeirra sé mismikill milli ára.
Dauði þeirra laxa sem hafa verið ræktaðir frá árinu 2025 jókst um 0,3 prósentustig vegna atviksins um helgina. Kaldvík hefur slátrað hluta fisksins fyrr en til stóð vegna atviksins í varúðarskyni.
Kaldvík sendi frá sér tilkynningu um atvikið til kauphallarinnar í Osló og á Íslandi, hvar fyrirtækið er skráð á markaði. Fyrirtækið segir ástandið stöðugt en að það fylgist áfram náið með. Fiskarnir, sem eru af 2026-kynslóðinni, séu staðsettir í kví í öðrum firði og hafi því ekki orðið fyrir áhrifum af atvikinu.
Áföll fyrr á árinu
Kaldvík hefur þegar lent í skakkaföllum fyrr í sumar vegna vetrarsára á eldislöxum á Austfjörðum. Fyrirtækið þurfti meðal annars að slátra löxum hjá sér sex mánuðum á undan áætlun fyrr á þessu ári.
Kaldvík ætlaði sér að framleiða ríflega 16 þúsund tonn af eldislaxi á fyrsta ársfjórðungi í ár en endaði á því að framleiða aðeins tæplega ellefu þúsund tonn.
Fyrirtækið skilaði ekki ársreikningi í kjölfar þessa, þar sem þeir vildu endurmeta virði líffræðilegra eigna fyrirtækisins, en fékk á sig sérstaka skilgreiningu á hlutabréfamarkaðnum í Noregi vegna vanskilanna.
Rúmlega 745.000 laxar drápust í íslensku fiskeldi í júní. Það er óvenjumikið og mestu afföll sem hafa orðið í einum mánuði síðan í desember 2024.
Seiði drápust hjá Kaldvík þegar þau voru sett út í sjó. Sviðstjóri MAST sagði hluta þeirra ekki hafa verið orðinn sjógönguhæfan en að stofnunin hefði óskað eftir frekari gögnum en ekki talið tilefni til þess að aðhafast frekar.