Íslendingar hafa brugðist illa við fregnum af birtingu Donald Trump af korti sem sýnir Ísland og fleiri lönd sem hluta af Bandaríkjunum. Kallað er eftir því að Þjóðaröryggisráð komi saman.Eins og greint var frá síðdegis í dag birti Donald Trump Bandaríkjaforseti gervigreindarmynd sem sýndi kort af gervallri Norður Ameríku og Íslandi í bandarísku fánalitunum. Semsagt að þetta væri bandarískt svæði. Trump hefur ítrekað haft í hótunum við nágrannaríki um innlimun, meðal annars Kanada, Grænland og kúbu. Nú hefur ísland bæst á listann.
Íslendingar bregðast við korti Trump – „Nóg komið af meðvirkni með þessari sturluðu hegðun“