Björn Gíslason, rakari á Selfossi, á að baki rúmlega sextíu ára starfsferil. Hann stendur á áttræðu og vonar að langt sé í að skærin fari á hilluna.
Björn segist hafa klippt um 125 þúsund höfuð á þeim árum sem hann hefur starfað sem rakari.
Björn varð 80 ára 2. september. Hann er með hárgreiðslustofuna sína í Miðgarði í miðbænum þar sem tveir synir hans starfa meðal annars með honum. Það er alltaf nóg að gera á stofunni enda er hann að klippa þrjá daga í viku.
„Ég mun halda þessu eitthvað áfram á meðan ég hef ánægju af því og heilsu til. Ég fór á samning 1964 hjá pabba, pabbi var rakari hér, byrjaði hér 1948 og hafði þann draum í sinni að ég tæki við af honum, sem ég og gerði,“ segir Björn.
Og er þetta alltaf jafn skemmtilegt?
„Já, alltaf jafn skemmtilegt. Ég er búinn að ganga í gegnum marga strauma, tískustrauma. Það var náttúrulega þegar bítlatískan kom upp úr 1970,“ segir Björn.
Björn segist aðallega klippa karlmenn og hefur alltaf verið mikið með föstu kúnnana.
„Ég byrjaði hjá pabba hans þegar ég var krakki og svo hef ég haldið mig við ættina alla tíð. Ég elska þessa rakarastofu, já, já”, segir Tryggvi Sigurðsson, Selfyssingur og kúnni til margra ára á rakarastofunni.
Tveir af sonum Björns vinna með honum á rakarastofunni.
Hvernig er að vinna með þeim?
„Nú, það er alveg mesta furða,“ segir Björn og hlær.
„Heyrðu, það eru bara forréttindi að fá að vinna með pabba sínum, það er bara þannig. Það getur alveg verið erfitt, það var erfiðara þegar við vorum yngri, þá var aðeins meiri hiti en í dag gengur þetta bara ljómandi vel,” segir Björn Daði, annar af sonunum.
En veit Björn hvað hann hefur klippt marga hausa á öllum þessum árum?
„Sonur minn var einhvern tímann búinn að setja upp líkan af reiknimöguleika og þá voru þetta orðnar 125 þúsund manns, eitthvað þar um, en hvort það er rétt eða rangt veit ég ekkert um,” segir Björn hlæjandi.
Hvað ætlar þú að klippa lengi í viðbót, þangað til að þú verður níræður eða hvað?
„Ég þori ekki alveg að svara því núna en ef heilsan gefur mér tækifæri til þess þá gæti það alveg gerst, já,“ segir Björn.