Gunnar Helgason, barnabókahöfundur, úthúðar Loga Má Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, vegna lækkunar útgjalda til Bókasafnssjóðs. Segir hann lækkunina vera stjórnarskrárbrot.„Logi Einarsson, er þetta eitthvert grín? Ertu búinn að gleyma samtalinu okkar í fyrra?“ spyr Gunnar í færslu á samfélagsmiðlum. Það er eftir að framlög til Bókasafnssjóðs voru lækkuð úr 224,5 milljónum króna í 142,3 milljónir. Málið hefur vakið reiði á meðal rithöfunda, einkum barnabókahöfunda.
Gunnar Helgason segir Loga Má brjóta stjórnarskrá – „Og hoppaðu upp í rassgatið á þér“