Alþýðusamband Íslands kynnti í síðustu viku samanburð á æfingagjöldum barna í handbolta og körfubolta á landinu. Mikill munur var á gjöldunum eftir landshlutum en töluvert minna kostar að æfa handbolta og körfubolta á Akureyri samanborið við höfuðborgarsvæðið.
„Það eru nú bara nokkrar ástæður fyrir því. Við erum náttúrlega bara að reyna að bjóða íþróttina á viðráðanlegu verði fyrir alla. Það eru ekki allir sem hafa tök á því að greiða tugi ef ekki hundruð þúsunda fyrir margar íþróttir og flestir eru í mörgum íþróttum,“ segir Gunnar Ernir Birgisson, yfirþjálfari handknattleiksdeildar Þórs.
Frístundastyrkurinn mismunandi eftir sveitarfélögum
Sveitarfélög veita flest hver frístundastyrki til barna sem stunda íþróttir og tómstundir. Hægt er að nota hann til niðurgreiðslu á æfingagjöldum. Í Reykjavík er styrkurinn 75.000 krónur á barn, og á bilinu 65-70 þúsund í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Á Akureyri er styrkurinn 55 þúsund á ári. 80 þúsund krónum munar á ári að æfa handbolta hjá Þór á Akureyri og Fram í Reykjavík.
105.000 krónur kostar að æfa handbolta fyrir 14 ára dreng hjá Þór samanborið við 185.500 krónur hjá Fram í Reykjavík. Munurinn er hins vegar fljótur að hverfa þegar horft er til ferðakostnaðar. Að sögn Gunnars þá getur 14 ára drengur verið að greiða um og yfir 100 þúsund krónur á ári í ferðakostnað í handboltanum.
Vilja ekki leggja meira á foreldrana
Margt spilar inn í við ákvörðun æfingagjalda og eru breyturnar í reikningsdæminu margþættar. Laun þjálfara spila stóran þátt, fjöldi iðkenda og svo er það ferðakostnaðurinn - sem er ekki með í æfingagjöldunum.
„Svo náttúrlega er verið að reyna að halda æfingagjöldunum niðri til að koma til móts við foreldra og forráðamenn vegna ferðakostnaðar. Hann getur orðið allverulegur þegar allt er lagt saman. Foreldrar út á landi eru örugglega að greiða meira en foreldrar á höfuðborgarsvæðinu þegar allt er lagt saman,“ segir Gunnar Ernir.
Að sögn forsvarsmanna íþróttaliðanna á Akureyri er ferðakostnaður 12-14 ára barna í íþróttum á ári oft talsvert meiri en æfingagjöldin og getur verið verulega íþyngjandi fyrir foreldra barna. Mörg dæmi séu um það að ferðakostnaður unglinga sé meiri en æfingagjöldin sjálf.