REW, sem halda utan um upphitunina, greina frá þessu í tilkynningu. Þar munu fjórtán listamenn úr íslenskri hipphoppsenu, bæði nýjum og eldri nöfnum, áður en Yasiin sjálfur stígur á svið.
Kitlu fyrir upphitunarsýninguna má sjá hér að neðan en uppselt er á tónleikana.
Fram koma:
- B-Ruff
- Daron Karl
- Heimir Bjéjoð
- Class B
- Kzoba
- Ruby Francis
- Hlynur Ingólfsson
- Joey Christ
- Emilía Hugrún
- Byrkir B
- Gísli Galdur
- Kjartan Trauner
- 7 Berg
- Saint Pete
Tónleikarnir áttu að fara fram í Gamla bíó 9. maí var óvænt frestað til 10. septembers, fimmtudagsins næstkomandi. Óviðráðanlegar aðstæður hjá rapparanum eru ástæðan fyrir frestuninni..
Yasiin Bey, áður þekktur sem Mos Def, sló í gegn á tíunda áratugnum sem hluti af hip-hop-dúóinu Black Star ásamt Talib Kweli. Á sólóferli sínum hefur hann gefið út sígildar plötur á borð við Black on Both Sides og The New Danger og starfað með listamönnum á borð við Kanye West, Madlib og J Dilla.