Þúsundir voru viðstaddir og fylgdust með útför Ratko Mladić í Belgrad í Serbíu í dag. Hann lést í fangelsi í Hollandi á dögunum þar sem hann afplánaði dóm fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð í borgarastyrjöldinni í Júgóslavíu á tíunda áratug síðustu aldar.
Þrátt fyrir grimmdarverkin lítur hluti Serba enn á hann sem hetju. Forseti ríkisráðs Bosníu og Hersegóvínu segir hryggilegt að ráðamenn í Serbíu samsami sig einhverjum versta morðingja í sögu Evrópu. Slíkt geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir Balkanskagann allan.
Serbía er umsóknarríki að Evrópusambandinu og frestaði stækkunarstjóri sambandsins ferð sinni þangað vegna útfararinnar. ESB segir í yfirlýsingu að dýrðarljómi í tengslum við stríðsglæpamenn og afneitun á þjóðarmorði stangist á við grunngildi þess.