Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, á fund í kjölfar myndbirtingar Donalds Trump Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum í dag.
„Þar var komið skýrt á framfæri þeirri afstöðu að færslan væri með öllu óviðeigandi,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu.
Trump birti síðdegis á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, kort af Bandaríkjunum, Mið-Ameríku, Kanada, Grænlandi og Íslandi þar sem bandaríski fáninn þekur öll löndin.
Myndin birt eftir að ESB kynnti fjárfestingar á Grænlandi
Forsetinn tilgreindi ekki hvers vegna hann birti kortið en enginn texti fylgdi færslunni. Tímasetningin vekur þó óneitanlega athygli en í morgun undirrituðu Grænland, Danmörk og Evrópusambandið samning um fjárfestingu í öflugra gervihnattasambandi.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, tilkynnti síðan um 200 milljóna evra fjárfestingu í Grænlandi á næstu tveimur árum til viðbótar. Fjárfestingarnar jafngilda 56 milljörðum íslenskra króna. Stuðningurinn snýst einkum um þrennt: Hreina orku, mikilvæga málma og netsamband.
Ásælni Trumps í Grænland síðastliðið eitt og hálft ár hefur ekki leynt sér. Forsetinn hefur til að mynda áður birt mynd á samfélagsmiðlum af Grænlandi með bandaríska fánanum, eða öðrum táknmyndum fyrir Bandaríkin eða jafnvel sér sjálfum. Kortið sem hann birti í dag svipar til þeirra mynda.