Hinn 95 ára Bernie Ecclestone var handtekinn á flugvelli í Portúgal. Ecclestone var með haglabyssu á sér.Blaðið Correio da Manha greinir frá þessu.Breski viðskiptamógúllinn Bernie Ecclestone, sem var stjórnarformaður Formúlu 1 árin 1987 til 2017, var handtekinn á Tires flugvellinum, nálægt Lissabon í Portúgal eftir að hann lenti þar í einkaþotu sinni. Ecclestone og eiginkona hans Fabiana Flosi eiga hús í héraðinu Cascais í Portúgal.Við reglubundið eftirlit fannst haglabyssa í þotunni sem Eccelstone hafði ekki leyfi fyrir. Auk handtökunnar var byssan gerð upptæk.
Hálftíræður Formúlu 1 mógúll handtekinn með haglabyssu á flugvelli