Barnaheill stóð fyrir byggingu á nýjum skóla í þorpinu Macca í Pujehun-héraði í Síerra Leóne. Skólinn, sem er ætlaður börnum á leik- og grunnskólaaldri, var vígður í dag en skólastarf hefst á morgun.
Tótla I. Sæmundsdóttir,framkvæmdastjóri Barnaheilla, segir þakklæti sér ofarlega í huga eftir vígsluna.
„Við hefðum aldrei getað gert þetta án þess að fólk alls staðar að úr samfélaginu okkar hefði komið saman og fjármagnað þetta með okkur.“
„Aðstaða barnanna til náms var lítil sem engin“
Barnaheill hefur starfað í Síerra Leóne síðan 2021.
„Við höfum unnið í fátækasta héraði landsins sem heitir Pujahun. Þar höfum við verið að vinna í ofbeldisforvörnum þar sem við erum í rauninni að tryggja öryggi barnanna í skólunum, heima fyrir og svo framvegis,“ segir Tótla.
Starfið feli í sér fræðslu og forvarnarprógramm. Á seinasta ári fór hópur frá Barnaheillum í vettvangsferð í þorpið Macca í Pujahun.
„Þá kom í ljós að börnin höfðu enga skólabyggingu og það vantaði almennilegan vatnsbrunn og salerni. Þannig aðstaða barnanna til náms var lítil sem engin. Þá var ákveðið að ráðast í það að byggja þessa hluti fyrir þorpið til að jafna stöðu barna á svæðinu,“ segir Tótla.
Byggður með styrkjum frá almenningi
Bygging skólans var fjármögnuð af almenningi á Íslandi.
„Við höfum verið að biðja fólk um að styrkja verkefnið. Það hafði haldið til dæmis barnakórtónleika til að styrkja verkefnið og við vorum með tónleika í gær í Salnum í Kópavogi, styrktartónleika,“ segir Tótla.
„Svo höfum við verið að safna frjálsu framlagi frá almenningi til þess að byggja skólann.“
„Orðlaus af stolti“
Tótla segir framkvæmdina hafa gengið afar vel.
„Ég er eiginlega bara orðlaus af stolti,“ segir hún.
„Það var mögnuð stund að fá að koma þarna í dag og hitta fólkið í þorpinu. Hitta börnin í þorpinu og fara með þeim í nýja skólann sinn.“