„Þó að hallalaus fjárlög séu góð, og bara frábært ef við náum því, en það má ekki vera, eins og forsætisráðherra orðaði það svo faglega í þinginu í vetur: „Sama hvað það kostar“. Mér finnst þetta vera allt of dýru verði keypt,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins sem situr í fjárlaganefnd.
Hann segir ríkisstjórnina ekkert virðast hafa lært af fjárlögum yfirstandandi árs. „Þar sem ríkisstjórnin var með krónutöluhækkanir umfram verðbólgumarkmiðið.“ Hann hefur ekki trú á að frumvarpið hjálpi við að ná niður vöxtum og verðbólgu.
Þeir sem skuldi borgi skattinn
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp í morgun og boðar fimm milljarða króna afgang á næsta ári. Ríkisstjórnin telur hallalaus fjárlög bestu leið ríkisins til að sporna við verðbólgu og háum vöxtum. Meðal aðgerða í fjárlögunum eru gjaldtaka á vinsælum ferðamannastöðum í eigu ríkisins, hækkað kílómetragjald og hærri bankaskattur.
Þó að einhverjar hugmyndir frumvarpsins séu kunnulegar Framsóknarmönnum, eins og kílómetragjald og bakaskattur, segir Stefán efnahagsástandið hafa gjörbreyst frá því að Framsókn var í ríkisstjórn.
„Það er alveg ljóst hver mun á endanum greiða hann [bankaskattinn], það eru þeir sem skulda,“ segir hann.
Óeðlilegt að ein stærsta útflutningsgrein landsins sé í neðra skattþrepi
Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem einnig situr í fjárlaganefnd, segir ríkisstjórnina ætla að sækja tekjur þar sem þær séu til. „Það er einmitt hjá bönkunum og svo hjá baðlónunum,“ segir hún.
„Ferðaþjónustan er stór og öflug atvinnugrein, ein stærsta útflutningsgrein landsins og það er kannski ekkert eðlilegt við það að sú grein skuli vera í neðra skattþrepi en ekki efra eins og aðrar atvinnugreinar. Þannig að nú er spurning hvort ferðaþjónustan sé ekki bara orðin það stór og öflug að hún sé þess verðug að vera í efra skattþrepi eins og hinar. Fyrir mér erum við hér að afnema skattstyrk og ég tel að þau hafi borð fyrir báru.“
Hvað varði aukið kílómetragjald segir Arna að fólk muni finna fyrir því að auknir fjármunir fari í samgöngur. „Við erum hér að auka í viðhald á samgöngum úr 12, 13 milljörðum í 20 og fólk mun finna það að þessir peningar séu að skila sér á réttan stað.“
Stefán Vagn Stefánsson og Arna Lára Jónsdóttir voru gestir í Kastljósi í kvöld. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan.