Vegurinn yfir Hellisheiði verður lokaður til austurs frá Reykjavík til Hveragerðis milli klukkan 14 og 18 í dag vegna malbikunarframkvæmda. Hjáleið verður um Þrengsli að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Leiðin til vesturs verður meðfram framkvæmdunum.