Í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands segir að aldjúp lægð sem var suður af landinu í gær nálgist nú Skotland. Því megi búast við suðvestan golu eða kalda og bjartviðri í dag.
Þó muni þykkna upp á Suðvestur- og Vesturlandi með kvöldinu. Hiti níu til átján stig, hlýjast norðanlands.
Á morgun er einnig útlit fyrir súld eða dálitla rigningu en lengst af verður þurrt norðaustan- og austanlands. Annað kvöld mun bæta í úrkomu sunnan- og vestantil.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðlæg átt 5-13 m/s og dálítil væta, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi og bjart með köflum. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Úrkomumeira um kvöldið.
Á fimmtudag:
Sunnan 3-10 og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Suðvestanátt og skúrir, en að mestu þurrt austanlands. Snýst í norðvestanátt með rigningu á Norðurlandi síðdegis. Heldur kólnandi.
Á laugardag:
Breytileg átt og skýjað en yfirleitt þurrt. Hiti 5 til 12 stig, mildast sunnanlands.
Á sunnudag:
Austlæg átt og fer að rigna, fyrst sunnan- og vestanlands.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðanátt með rigningu fyrir norðan, en þurrt syðra. Svalt í veðri.