Ný skoðanakönnun sýnir að nánast engu munar á fylgi Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseta og helsta keppinautnum Flávio Bolsonaro, hægri sinnuðum öldungadeildarþingmanni og syni Jair Bolsonaro fyrrverandi forseta.
Í könnuninni sem Quaest gerði fyrir dagblaðið Globo var líkt eftir fyrri og síðari umferð forsetakosninganna sem haldnar verða í október. Í fyrri umferðinni fengi Lula 36 prósent atkvæða og Bolsonaro 29 prósent. Í þeirri síðari fengju báðir 41 af hundraði. Lula var kjörinn forseti þriðja sinni haustið 2022 þegar hann bar naumt sigurorð af Jair Bolsonaro.