Vel heppnuð þögn, mis­heppnaður Mahler - Vísir

Vel heppnuð þögn, mis­heppnaður Mahler - Vísir

Vel heppnuð þögn, mis­heppnaður Mahler - Vísir

Þetta verk var á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í Hörpu á fimmtudagskvöldið. Þeir mörkuðu upphaf vetrarstarfsins. Barbara Hannigan er nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar, svo tónleikarnir voru töluvert spennandi. Hver verður listræn stefna hennar í nánustu framtíð?

Sinfóníuhljómsveit Íslands á opnunartónleikum vetrarins í Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 3. september.

Þögn og lúðrablástur

Ég verð að segja að 4'33" eftir Cage kom bara ágætlega út. Tónleikagestir voru töluvert stilltari en þegar ég flutti verkið á ráðstefnu um tímann í HÍ árið 2000. Kona við hliðina á mér var með lokuð augun og sælusvip á andlitinu. Þögnin var alltumlykjandi, fyrir utan smá hósta af og til. Hugmynd tónskáldsins var að láta umhverfishljóðin í salnum verða að sjálfri tónlistinni, og það heppnaðist hér.

From the Steeples and the Mountains eftir Charles Ives kom líka vel út. Ég sat í salnum rétt fyrir framan svalirnar og sitthvorum megin við þær var lítill hópur málmblásara. Bæði hægra og vinstra megin á sviðinu var svo leikið á rörklukkur. Þetta er stutt tónsmíð sem byrjaði á lágstemmdum nótum en magnaðist mjög fljótt upp í þróttmikinn, áhrifaríkan hápunkt.

Misheppnaður hryllingur

Því miður lá leiðin niður á við eftir þetta.

Undark eftir nýbakað staðartónskáld Sinfóníunnar, Huga Guðmundsson, var þunnur þrettándi. Titill verksins var líka nafnið á málningu sem var blanda af fosfóri og radíumi. Hún var meðal annars notuð á þriðja áratug síðustu aldar til að gera klukkuskífur sjálflýsandi. Saklausum verkakonum var sagt að málningin væri skaðlaus en svo var nú aldeilis ekki. Radíumryk settist á húð þeirra, hár og föt svo þær virtust jafnvel sjálfar glóa. Margar veiktust hræðilega og sumar létust kvalafullum dauðdaga.

Maður hefði haldið að tónlist um viðbjóðslegan glæp á saklausum konum myndi á einhvern hátt grípa hryllinginn og miðla honum til áheyrenda. Í sjónvarpsþáttunum Chernobyl er tónlist Hildar Guðnadóttur beinlínis geislavirk og á stóran þátt í því hversu magnað andrúmsloftið er. 

Hér var ekkert slíkt á boðstólum. Þetta var fyrst og fremst huggulegt næturljóð. Jú, það var fallegur samhljómur sem var nostursamlega útfærður af hljómsveitinni. Kliðmjúkt klukknatif. Hófleg stígandi, en hvert leiddi hún? Hvar var Undark, eitraða málningin? Verkið bar ekki nafn með rentu. Það hefði alveg eins getað heitið Rauð fura, Kjörvari frá Byko. Það var nánast eins og Mikki mús hefði verið fenginn til að segja okkur söguna af Djáknanum á Myrká.

Er Mahler ofmetinn?

Enn síðri var aðalrétturinn á matseðlinum, fyrsta sinfónían eftir Mahler. Hún tekur um klukkutíma í flutningi. Þegar um hálftími var liðinn klóraði ég mér í hausnum. Mig minnti að þetta væri stórbrotinn og kröftugur óður til náttúrunnar, fullur af dýpt og kyngi. En það sem blasti við var krúttleg — og allt of hæg — kvikmyndatónlist við eldgamla teiknimynd eftir Disney. Alla hrynjandi vantaði, allan drifkraft, já, alla snerpu.

Maður sá teiknimyndina fyrir sér.

Ungur hjörtur vaknar í töfraskógi innan um brosandi kanínur og fiðrildi, fær sér skoppandi snúning í krúttlegum sveitadansi, missir besta vin sinn — líklega lítinn broddgölt — og fylgir honum tárvotur til grafar ásamt allri dýraflórunni. Svo skellur á stormur en hornablásarar rísa eins og englasveit til að tilkynna nokkru síðar að nú sé allt orðið gott aftur.

Nei. Mahler er miklu undarlegri, grófari, kaldhæðnari og myrkari en þessi teiknimynd.

Barbara Hannigan er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitin spilaði þó vissulega vel. Strengirnir voru þykkir og munúðarfullir, slagverkið hárnákvæmt, tréblásararnir fágaðir og málmblásturinn yfirleitt hreinn og kröftugur. Vandamálið var að hraðaval Hannigan var ósannfærandi. Í staðinn fyrir að hrynurinn skapaði sína eigin stígandi, var teygt á öllu, taktinn skorti snerpu og stundum leikið svo hægt að allt flæði datt úr tónlistinni.

Þetta varð sérstaklega áberandi í öðrum þættinum. Sveitadansinn er vissulega skoplegur. Hann er grófur og dálítið klunnalegur og Mahler er ekkert að fela sveitamennskuna. En þar er líka gífurlegur líkamlegur kraftur, ferskleiki og jafnvel ákveðin tign.

Hjá Hannigan varð hann hins vegar eins og dýrindis kasmírpeysa sem hefur óvart verið sett á vitlaust prógramm í þvottavélinni. Gróteska er ekki það sama og kjánaskapur. Húmorinn í Mahler verður sterkastur þegar maður finnur líka fyrir einhverju stærra og dekkra á bak við hann. Hér var stemningin ekki sannfærandi.

Hvar voru draugarnir?

Mest saknaði ég dulúðarinnar í þriðja þættinum. Þar birtist Meistari Jakob í moll, kunnuglegt barnalag málað myrkum litum. Þetta er eitt undarlegasta augnablik allrar sinfóníunnar. Tónlistin er í senn jarðarför, skopstæling, bernskuminning og hálfgerð martröð. Kontrabassaleikarinn sem spilaði í byrjun kaflans var samt brothættur á viðeigandi hátt, en heildarhljómsveitarleikurinn sem tók við skorti réttu ákefðina þótt hann væri tæknilega þéttur.

Hjá Hannigan var nær öll þessi dulúð horfin. Jarðarförin varð að dauflegri skrúðgöngu í vondu veðri. Draugarnir höfðu greinilega fengið frí. Og aftur birtist sama tilhneigingin: eitthvað sem átti að vera ókennilegt og tvírætt varð algerlega tannlaust og gerilsneytt.

Víðavangshlaup áttavilltra?

Hraður lokaþátturinn var hins vegar annað vandamál. Hann var ótrúlega sundurlaus. Vissulega gerist margt í þessum þætti. Tónlistin rifnar upp, hrynur aftur niður, rifjar upp fyrri þræði, sekkur í langar lýrískar hugleiðingar og rýkur svo aftur af stað. En undir góðri stjórn verður þetta allt hluti af einum risastórum tónaseið.

Maður finnur að eitthvað er í húfi, skynjar hvert tónlistin stefnir, jafnvel þegar hún villist af leið. Hér virtust ólíkir kaflar hins vegar hafa lítið innbyrðis samhengi. Þeir komu hver á fætur öðrum eins og atriði í sirkus. Og aftur var það sami skortur á þrýstingi: þegar ekkert ýtir tónlistinni áfram verður hvert atriði eyland.

Smá stormur. Smá rómantík. Smá læti. Annað þema. Meiri læti.

Það vantaði stóra bogann, tilfinninguna fyrir því að öll sinfónían væri hægt og rólega að safna kröftum fyrir eitthvað óhjákvæmilegt. Lokahápunkturinn, þegar hornleikararnir rísa úr sætum og blása sem mest þeir mega, skapaði ekki neina gæsahúð.

Ég velti því fyrir mér hvort Hannigan hafi verið að leitast við að skapa meiri nálægð í sinfóníu Mahlers, gagnsæi, eins konar viðkvæma kammerútgáfu sem gefur í skyn frekar en að slengja tilfinningunum framan í áheyrandann. Ef svo var fannst mér það ekki virka. Þegar Mahler hljómar eins og Disney hefur eitthvað brugðist. Nú er ég ekki að biðja um gamaldags túlkun á Mahler, massíva, digurbarkalega og stórkarlalega. En maður vill fá eitthvað sem er heiðarlegt og kemur við kvikuna á manni.

Þegar ég var kominn heim setti ég fyrstu sinfóníu Mahlers með Riccardo Chailly á fóninn. Hún tók 55 mínútur á meðan Hannigan fór yfir klukkutímann. Það hljómar ekki eins og nein ósköp, enda liggur munurinn ekki í mínútunum heldur í því sem gerist innan þeirra: hvernig teygt er á áherslum, hvernig frasar eru mótaðir, hversu skarpir upptaktarnir eru. Tveir flutningar geta tekið jafnlangan tíma og samt haft gerólíkan þrýsting.

Chailly er einmitt þekktur fyrir skýrleika, gagnsæi og tærar raddir, en samt heyrði ég allt annað verk. Þarna var tign og kraftur. Óþægileg fjarlægð og dulúð. Spenna, samhengi og raunverulegur hápunktur.

Mahler slapp sem sagt sýknaður.

Hannigan ekki.

Niðurstaða:

Það sem hér heyrðist var listlíki fremur en raunveruleg list, tilhneiging til að fela allt myrkur undir fallegri áferð. Ef það er myrkur í tónlistinni, þá á það að fá að lifa. Ives og Cage lofuðu óneitanlega góðu, en svo fór allt á verri veg. Vonbrigði.

#heppnuð #mahler #misheppnaður #vel #þögn


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262931608d/vel-heppnud-thogn-mis-heppnadur-mahler

📰 Aðrar fréttir

Meira en helmingur lækna á Landspítalanum í hlutastarfi - Enn hærra hlutfall á Akureyri
📅 08.09.2026 👁️ 0
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum í hlutastarfi - Enn hærra hlutfall á Akureyri
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum starfar þar í hlutastarfi og hlutfallið er enn hærra á Sjúkrahúsinu á Akureyri.Þetta kemur fram í svari Ölmu...
Sláandi niðurstöður í PISA: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja
📅 08.09.2026 👁️ 0
Sláandi niðurstöður í PISA: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja
Árangur grunnskólabarna á Íslandi er verri en nokkru sinni áður, þetta kemur fram í niðurstöðum nýjustu PISA könnunarinnar sem mælir námsárangur barna...
Hafþór sigraði þrátt fyrir að nýtt heimsmet væri slegið
📅 08.09.2026 👁️ 0
Hafþór sigraði þrátt fyrir að nýtt heimsmet væri slegið
Hafþór Júlíus Björnsson stóð upp sem sigurvegari á aflraunamótinu The Strongman Open & World Deadlift Championships 2026 sem fór fram í Birmingham á E...
Prentarar sífellt vinsælli skotmark tölvuþrjóta
📅 08.09.2026 👁️ 0
Prentarar sífellt vinsælli skotmark tölvuþrjóta
Fyrirtæki vanmeta öryggi tækja eins og prentara, sem getur leitt til rekstrartjóns og gagnaleka, að því er fram kom á ráðstefnu tæknirisans HP.
PISA 2025: Árangur íslenskra nemenda aldrei verið verri
📅 08.09.2026 👁️ 0
PISA 2025: Árangur íslenskra nemenda aldrei verið verri
Niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 sýna verri árangur íslenskra grunnskólabarna en nokkur fyrri PISA-mæling. Niðurstöðurnar eru kynntar í skýrslu sem...
UK pupils rank highly in international reading, maths and science tests
📅 08.09.2026 👁️ 0
UK pupils rank highly in international reading, maths and science tests
But the Pisa test scores vary significantly between England, Northern Ireland, Scotland and Wales.
Dýr­mætum lista­verkum stolið af safni Renoir - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Dýr­mætum lista­verkum stolið af safni Renoir - Vísir
Safnið er í bænum Cagnes-sur-Mer sem er skammt frá borginni Nice í suðurhluta Frakklands. Bryan Masson, bæjarstjóri Cagnes-sur-Mer, vaknaði rétt fyrir...
Ný PISA-könnun: Enn versnar staða ís­lenskra ung­linga - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Ný PISA-könnun: Enn versnar staða ís­lenskra ung­linga - Vísir
Niðurstöðurnar koma fram í skýrslu PISA sem birt var í morgun en um er að ræða könnun sem lögð var fyrir nemendur 10. bekkjar í mars og apríl 2025. Kö...
Starfs­menn í verk­fall eftir heim­sókn trúar­hóps - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Starfs­menn í verk­fall eftir heim­sókn trúar­hóps - Vísir
Á laugardag heimsóttu hundrað meðlimir trúarhóps af hindúatrú Eiffelturninn en um helgina opnaði hópurinn sína fyrstu trúarmiðstöð í París. Þegar meðl...
Ísland þvert á flokka vill að Þorgerður Katrín segi af sér
📅 08.09.2026 👁️ 0
Ísland þvert á flokka vill að Þorgerður Katrín segi af sér
Rúmlega 1.600 höfðu skrifað undir áskorun upp úr klukkan sjö í morgun þess efnis að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segi af sér sem utanríkisráðherra o...
Rólegheitaveður víðast hvar
📅 08.09.2026 👁️ 1
Rólegheitaveður víðast hvar
Norðlendingar geta búist við allt að 18 stiga hita í dag. Bjartviðri verður um land allt en það þykknar upp á Suðvestur- og Vesturlandi með kvöldinu. ...
TITSA changes Tenerife bus timetables and launches new direct Costa Adeje route
📅 08.09.2026 👁️ 0
TITSA changes Tenerife bus timetables and launches new direct Costa Adeje route
TITSA has introduced its winter bus schedules across Tenerife following the end of the main summer season, bringing timetable changes to numerous rout...
Fears for children's safety in West Bank school as settler attacks rise
📅 08.09.2026 👁️ 0
Fears for children's safety in West Bank school as settler attacks rise
Six people, including three pupils at the Palestinian school, have been killed in al-Mughayyir this year, in a surge of Israeli settler-related violen...
Calima pre-alert remains active in Gran Canaria, Lanzarote and Fuerteventura
📅 08.09.2026 👁️ 0
Calima pre-alert remains active in Gran Canaria, Lanzarote and Fuerteventura
The Canary Islands Government's official calima pre-alert remains in force today, Tuesday, with residents and tourists warned about reduced visibility...
Instagram users face ransom demands over fake copyright claims
📅 08.09.2026 👁️ 1
Instagram users face ransom demands over fake copyright claims
Users say they are losing money or risk having their accounts suspended because Meta struggles to identify scammers.
Allt að á­tján stiga hiti í dag - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Allt að á­tján stiga hiti í dag - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands segir að aldjúp lægð sem var suður af landinu í gær nálgist nú Skotland. Því megi búast við suðves...
Kort Trumps: Grænlendinga sjálfra að ákveða framtíð sína
📅 08.09.2026 👁️ 0
Kort Trumps: Grænlendinga sjálfra að ákveða framtíð sína
Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segir heimsbyggðina alla og Bandaríkjamenn ekki síst þurfa að skilja að það sé Grænlendinga sjálfra að ák...
Fuerteventura winery wins Canary Islands Tourism Award for Excellence
📅 08.09.2026 👁️ 0
Fuerteventura winery wins Canary Islands Tourism Award for Excellence
A winery in Lajares has been recognised for helping diversify Fuerteventura's tourism industry by combining local wine production, sustainability, rur...
Ógnandi, vopnaður hnífi og í annar­legu á­standi - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Ógnandi, vopnaður hnífi og í annar­legu á­standi - Vísir
Alls voru fjórir vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu klukkan fimm í morgun samkvæmt dagbók lögreglu.  Lögreglan á varðsvæði eitt...
'Good to have choice': Australians on opting out of social media algorithms
📅 08.09.2026 👁️ 0
'Good to have choice': Australians on opting out of social media algorithms
The BBC spoke to people in Sydney about Australia's plans to force social media companies to allow users to easily opt in or out of personalised algor...
Handtekinn eftir ógnandi hegðun vopnaður hnífi
📅 08.09.2026 👁️ 0
Handtekinn eftir ógnandi hegðun vopnaður hnífi
Lögreglumenn handtóku mann í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt sem vopnaður hnífi hafði uppi ógnandi hegðun.Menn sem þóttu óvelkomnir á mats...
Kynna áherslumál þingvetrarins
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kynna áherslumál þingvetrarins
Formenn stjórnarflokkanna, þær Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barn...
Vegurinn um Hellisheiði lokaður til austurs milli 14 og 18
📅 08.09.2026 👁️ 0
Vegurinn um Hellisheiði lokaður til austurs milli 14 og 18
Vegurinn yfir Hellisheiði verður lokaður til austurs frá Reykjavík til Hveragerðis milli klukkan 14 og 18 í dag vegna malbikunarframkvæmda. Hjáleið ve...
Canary Islands health apps change as miSCS takes over appointments and medical records
📅 08.09.2026 👁️ 0
Canary Islands health apps change as miSCS takes over appointments and medical records
Residents who use the Canary Islands public health system will now need the miSCS app to manage appointments and access medical information after two ...
Ný könnun: Lula og Bolsonaro hnífjafnir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ný könnun: Lula og Bolsonaro hnífjafnir
Ný skoðanakönnun sýnir að nánast engu munar á fylgi Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseta og helsta keppinautnum Flávio Bolsonaro, hægri sinnuðum ...
Fleiri upp­sagnir og ó­vissa um Borgarlínuna - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Fleiri upp­sagnir og ó­vissa um Borgarlínuna - Vísir
Þetta segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, í ítarlegu viðtali við fréttastofu. Þrír mánuðir eru síðan hún tók við sem borgarstjóri. En...
Níu hafa fundist látnir eftir sprengingu í herstöð og fimm enn leitað
📅 08.09.2026 👁️ 0
Níu hafa fundist látnir eftir sprengingu í herstöð og fimm enn leitað
Nú er vitað að níu fórust í tveimur öflugum sprengingum í herstöð í borginni Viacha um þrjátíu kílómetra frá La Paz, höfuðborg Bólivíu, á föstudaginn ...
Zelensky segir Rússa reiðubúna til viðræðna
📅 08.09.2026 👁️ 2
Zelensky segir Rússa reiðubúna til viðræðna
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hefur eftir samningamönnum Bandaríkjanna að rússnesk stjórnvöld hafi sýnt vilja til að semja um lausn innrásarstríðs...
US-Canada tariffs: Canada braces for prolonged trade war as counter-tariffs on US take effect
📅 08.09.2026 👁️ 1
US-Canada tariffs: Canada braces for prolonged trade war as counter-tariffs on US take effect
The tariffs will apply to $20bn worth of American products, jeopardising the stability of the world's largest bilateral trading relationship.
Ný rannsókn: Óbeinar reykingar draga milljónir til dauða
📅 08.09.2026 👁️ 2
Ný rannsókn: Óbeinar reykingar draga milljónir til dauða
Óbeinar reykingar stuðluðu að nærri 1,7 milljónum ótímabærra dauðsfalla árið 2023 og valdið snemmbærum, alvarlegum sjúkdómum samkvæmt niðurstöðum nýrr...
A&E did not get the basics right - now my son's life is ruined at 32
📅 08.09.2026 👁️ 2
A&E did not get the basics right - now my son's life is ruined at 32
Oli's experience is one of a growing number of clinical negligence claims being made in England, BBC analysis shows.
Ríkissaksóknari segir af sér vegna rannsóknar á spillingarmáli tengdu embættinu
📅 08.09.2026 👁️ 2
Ríkissaksóknari segir af sér vegna rannsóknar á spillingarmáli tengdu embættinu
Spillingarrannsóknarstofnun ríkisins Nabu gerði húsleit á skrifstofu saksóknara um helgina í tengslum við rannsókn á svonefndum falsorðasímaverum og p...
Rússlandsher hefur árásir að nýju eftir þriggja daga hlé
📅 08.09.2026 👁️ 1
Rússlandsher hefur árásir að nýju eftir þriggja daga hlé
Háværar sprengingar kváðu við víðs vegar um úkraínsku höfuðborgina Kyiv í kvöld og nótt að sögn fréttaritara AFP í borginni. Hann segist einnig hafa s...
UK government expected to announce restrictions on trade with West Bank settlements
📅 08.09.2026 👁️ 2
UK government expected to announce restrictions on trade with West Bank settlements
Foreign Secretary Ed Miliband is expected to outline proposals targeting goods from Israeli-occupied areas on Tuesday.
Sex af hverjum tíu kveðast uggandi yfir gengi Alternative für Deutschland
📅 08.09.2026 👁️ 2
Sex af hverjum tíu kveðast uggandi yfir gengi Alternative für Deutschland
Tveir þriðju þýskra kjósenda segjast uggandi eftir stórsigur harðlínuflokksins Alternative für Deutschland í þingkosningum í sambandslandinu Saxlandi-...
UK weather: Drought and hosepipe bans remain despite wettest week since early February
📅 08.09.2026 👁️ 2
UK weather: Drought and hosepipe bans remain despite wettest week since early February
Parts of England and Wales have seen more rain than any other week since early February but are still in drought.
Prince George to start school at Eton College
📅 08.09.2026 👁️ 2
Prince George to start school at Eton College
The 13-year-old will follow in the footsteps of his father, the Prince of Wales, by attending the elite private school.
Police forces failing investigation basics, report says
📅 08.09.2026 👁️ 1
Police forces failing investigation basics, report says
His Majesty's Chief Inspector of Constabulary said too many victims are not receiving the quality of service they should expect.
Eiffel Tower shut by staff strike over female workers being moved for religious visit
📅 07.09.2026 👁️ 0
Eiffel Tower shut by staff strike over female workers being moved for religious visit
An investigation will be launched into the incident, which left female employees "humiliated", a union representative says.
Vinirnir sem hurfu í Himalaja
📅 07.09.2026 👁️ 1
Vinirnir sem hurfu í Himalaja
Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson voru meðal fremstu fjallamanna landsins þegar þeir 27 ára gamlir lögðu upp í örlagaríkan leiðangur á hinn 7...
„Það er ekki gott að vera óvinur Bandaríkjanna en hálfu verra að vera vinur þeirra“
📅 07.09.2026 👁️ 2
„Það er ekki gott að vera óvinur Bandaríkjanna en hálfu verra að vera vinur þeirra“
„Ég held að það sé alltaf skynsamlegt að hlusta þegar Bandaríkjaforseti tjáir sig en ég held að það sé ekki ástæða til þess að taka þetta bókstaflega,...
AI cancer cures slowed by chip shortage, says UK's biggest tech boss
📅 07.09.2026 👁️ 2
AI cancer cures slowed by chip shortage, says UK's biggest tech boss
The head of chip designer Arm says modelling how a DNA marker is impacted by cancer cannot be done now, but computers are "going to solve it".
AI will cure cancer in our lifetime, claims boss of UK chip giant
📅 07.09.2026 👁️ 0
AI will cure cancer in our lifetime, claims boss of UK chip giant
Arm Holding's chief executive Rene Haas says artificial intelligence will find a solution to the disease.
Kim fjölgar her­skipum sínum - Vísir
📅 07.09.2026 👁️ 2
Kim fjölgar her­skipum sínum - Vísir
Hann sagði að miklum áfanga í þeirri vinnu yrði náð eftir um átta mánuði. Tundurspillirinn Kang Kon og systurskipið Choe Hyon, sem sjósett var fyrir þ...
Hallalaus fjárlög „allt of dýru verði keypt“
📅 07.09.2026 👁️ 2
Hallalaus fjárlög „allt of dýru verði keypt“
„Þó að hallalaus fjárlög séu góð, og bara frábært ef við náum því, en það má ekki vera, eins og forsætisráðherra orðaði það svo faglega í þinginu í ve...
Flight recorders recovered from 'devastating' Amazon cargo plane crash
📅 07.09.2026 👁️ 2
Flight recorders recovered from 'devastating' Amazon cargo plane crash
Five people were killed and five others seriously injured when the Boeing 767-300 overshot the runway at Miami International Airport.
Miami Amazon plane crash: Flight recorders recovered from cargo plane
📅 07.09.2026 👁️ 1
Miami Amazon plane crash: Flight recorders recovered from cargo plane
Five people were killed and five others seriously injured when the Boeing 767-300 overshot the runway at Miami International Airport.
Fjár­festa í mennta­málum, fjar­skiptum og jarðmálmum á Græn­landi - Vísir
📅 07.09.2026 👁️ 2
Fjár­festa í mennta­málum, fjar­skiptum og jarðmálmum á Græn­landi - Vísir
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefur síðustu tvo daga verið í heimsókn á Grænlandi en hún greindi frá því á blaðamannafundi í N...
Þúsundir við útför dæmds stríðsglæpamanns
📅 07.09.2026 👁️ 2
Þúsundir við útför dæmds stríðsglæpamanns
Þúsundir voru viðstaddir og fylgdust með útför Ratko Mladić í Belgrad í Serbíu í dag. Hann lést í fangelsi í Hollandi á dögunum þar sem hann afplánaði...
Miðaldra kona náði að yfirbuga leigumorðingja sinn – Svo komst hún að því hver réð hann
📅 07.09.2026 👁️ 2
Miðaldra kona náði að yfirbuga leigumorðingja sinn – Svo komst hún að því hver réð hann
Fyrir tuttugu árum síðan þurfti 51 árs hjúkrunarkona í Bandaríkjunum að berja af sér leigumorðingja sem kom inn á heimilið. Eftir harða rimmu náði hún...