Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson voru meðal fremstu fjallamanna landsins þegar þeir 27 ára gamlir lögðu upp í örlagaríkan leiðangur á hinn 7161 metra háa tind Pumori við landamæri Nepals og Kína. Í ferðinni gerðust óvæntir atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Æskuvinirnir skiluðu sér ekki heim.
Röð tilviljana gerði það að verkum að þetta gamla mál kom aftur upp á yfirborðið árið 2018.
Hinn 92 ára gamli Rúnar Guðbjartsson, faðir Kristins, segir söguna í sjónvarpsþættinum Á gamans aldri.
Í hlaðvarpsþættinum Mannshvörfin í Himalaja heyrum við í vinum Þorsteins og Kristins sem voru með þeim í leiðangrinum. Í dagbókum þeirra eru ítarlegar lýsingar á ferðalaginu og því sem gerðist þegar síðast sást til þeirra.
Ættingjar Þorsteins og Kristins lýsa áhrifunum sem málið hefur haft á fjölskyldur þeirra.