Árangur grunnskólabarna á Íslandi er verri en nokkru sinni áður, þetta kemur fram í niðurstöðum nýjustu PISA könnunarinnar sem mælir námsárangur barna í löndum OECD. í skýrslu sem kom út í morgun segir að við lok grunnskóla búa 44% íslenskra barna ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi, það hlutfall hefur hækkað um fjögur prósentustig frá síðustu PISA könnun sem var gerð árið 2022. Í raun hefur færni íslenskra grunnskólabarna versnað með hverri einustu könnun. Þessi könnun var gerð meðal tíundu bekkinga í mars og apríl í fyrra.
Sláandi niðurstöður í PISA: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja