Formenn stjórnarflokkanna, þær Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, kynna þingmál ríkisstjórnarinnar á blaðamannafundi fyrir hádegi í dag.
Þar kemur fram hvaða lagafrumvörp og þingsályktunartillögur hver og einn ráðherra hyggst leggja fram í vetur.
Á fundinum ætti að skýrast hvaða þingmál ríkisstjórnin leggur mesta áherslu á og hvenær helstu mál koma inn í þingið. Búast má við að nokkur þeirra verði endurflutt frá síðasta þingi.
Upptaktur þingvetursins er hafinn. Fjárlagafrumvarp næsta árs var kynnt í gær þar sem Daði Már Kristófersson boðaði að rekstur ríkissjóðs fari úr mínusi í plús og boðar fimm milljarða króna afgang á fjárlagafrumvarpi næsta árs. Fjárlög hafa ekki verið afgreidd með afgangi síðan 2018 þegar Alþingi samþykkti fjárlög fyrir ríkisreksturinn 2019.
Þetta er í þriðja sinn sem þessi ríkisstjórn kynnir áherslumál þingvetrar. Fundurinn hefst klukkan 9 og verður í beinu streymi á RÚV.is.
Alþingi verður sett síðdegis og verður það með hefðbundnum hætti. Þingsetningarathöfnin hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Að henni lokinni setur Halla Tómasdóttir forseti 158. löggjafarþingið.
RÚV verður með fréttavakt á RÚV.is frá þingsetningunni eftir hádegi í dag . Bæði guðsþjónustunni og þingsetningunni verður útvarpað á Rás 1. Bein útsending frá þingsetningunni hefst á RÚV klukkan 13:55.
Þá verða umræður um stefnuræðu forsætisráðherra annað kvöld í beinni útsendingu á RÚV.