Óbeinar reykingar stuðluðu að nærri 1,7 milljónum ótímabærra dauðsfalla árið 2023 og valdið snemmbærum, alvarlegum sjúkdómum samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtust í vísindaritinu The Lancet í dag.
Yfir 2,7 milljarðar manna, þar á meðal 767 milljón börn, finna fyrir áhrifum óbeinna reykinga á heimsvísu. Rúmlega fimm milljónir barna fengu öndunarfærasýkingar vegna reykinga annarra árið 2023.
Fólk sem statt er nærri reykingamanni verður fyrir svokölluðum hliðarreyk frá tóbaksvörunni sjálfri, sem er algerlega ósíaður og þéttur, og þeim reyk sem viðkomandi andar frá sér.
Í greininni segir að tóbak sé enn ein helsta orsök margvíslegra sjúkdóma og bent á að fólk sem ekki reykir sé meðal þeirra átta milljóna sem talið er að hafi látist úr reykingatengdum sjúkdómum árið 2023.
Til að meta útbreiðslu áhrifa óbeinna reykinga í 204 löndum heims og sjúkdómsbyrði þeirra frá 1990 til 2023 rýndu rannsakendur gögn Heilbrigðisstofnunar Bandaríkjanna, heilbrigðisgagnagrunnsins PubMed og mörg lýðfræðileg skjalasöfn.
Þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr útbreiðslu reykinga á heimsvísu helst heildarfjöldi þeirra sem finna fyrir áhrifunum óbreyttur vegna fólksfjölgunar og aukinnar útsetningar í löndum Afríku og Mið-Austurlanda.
Hætta á veikindum kvenna af völdum óbeinna reykinga segja greinarhöfundar að sé einnig vanmetin þótt rannsóknin sýni að þær finni í óhóflegum mæli fyrir afleiðingunum á þeim svæðum þar sem fátíðara er að þær reyki sjálfar.
Rannsakendur hvetja ríkisstjórnir heimsins til að koma á enn strangari takmörkunum á reykingum í almannarými og vernda þannig konur og börn fyrir afleiðingum óbeinna reykinga.