Ráðamenn í Katar fengu ábendingar um það áður en Hamas réðst á Ísrael í október 2023 að samtökin hygðu á óhugnanlega árás og komu þeim á framfæri við Ísraela. Þetta segir ísraelska blaðið Haaretz í dag og byggir á væntanlegri bók sem blaðamenn þess hafa unnið að.
Árás Hamas 7. október 2023 er mannskæðasta árás á Ísrael frá upphafi.
Haaretz segir að Yahya Sinwar, þáverandi leiðtogi Hamas, hafi varað fyrrverandi palestínskan embættismann við árásinni og líkt henni við jarðskjálfta. Blaðið segir embættismanninn hafa komið upplýsingunum á framfæri við ráðgjafa sem vinnur fyrir stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Blaðið hefur verið gagnrýnið á stjórn Netanyahus.
Mohamed bin Zayed Al Nahyan, forseti furstadæmanna, er síðan sagður hafa hringt í Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og látið hann vita að stór árás væri yfirvofandi.
Netanyahu neitar því að hafa rætt við bin Zayed Al Nahyan og kveðst ekki hafa fengið viðvörunina.
Stjórnarandstæðingar og mótframbjóðendur Netanyahus í þingkosningum gefa lítið fyrir neitanir hans. Fyrrverandi herforinginn Gadi Eisenkot segir að Netanyahu reyni að koma sér undan ábyrgð og að afsakanir hans séu ömurlegar. Naftali Bennett, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði að Netanyahu bæri beina og persónulega ábyrgð á dauða þeirra sem Hamas-liðar drápu í árásunum 7. október 2023.