Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hefur eftir samningamönnum Bandaríkjanna að rússnesk stjórnvöld hafi sýnt vilja til að semja um lausn innrásarstríðsins í viðræðum við þá um helgina. Vefmiðillinn Axios hefur þetta eftir Zelensky.
Sendimennirnir Steve Witkoff og Jared Kushner hefðu sagt Rússa tilbúna til samninga eftir fundinn með Vladimír Pútín forseta. Zelensky sagði einnig að Bandaríkjastjórn vildi þrýsta á að dregið yrði úr átökum áður en vetur skellur á.
Rússar héldu að þeir gætu bugað Úkraínumenn næsta vetur en á hinn bóginn vildi Pútín ekki ergja Donald Trump Bandaríkjaforseta. Rússlandsher hefur gert árásir á orkukerfi Úkraínu hvern einasta vetur frá því innrásin hófst og þannig skilið landsmenn eftir án upphitunar og rafmagns í fimbulfrosti.
Zelensky sagði Witkoff og Kushner meðal annars hafa borið upp tillögur tengdar orkumálum, kornflutningum auk gas- og olíuútflutnings en þvertók fyrir að upplýsa frekar um innihaldið.
Ætlunin væri að koma á viðræðum sem tryggðu að næsti vetur yrði ólíkur þeim fyrri og færa stríðandi fylkingar nær friði. Witkoff lýsti ánægju með viðræðurnar um helgina og nefndi að mögulegt væri að endurvekja þríhliða friðarviðræður.
Moskvu- og Kyiv-heimsókn þeirra Witkoffs og Kushners er nýjasta viðleitni Bandaríkjamanna til að leysa úr þeim pattstöðuhnút sem ríkir um leiðir til að ljúka þessu mannskæðasta stríði í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.