Norðlendingar geta búist við allt að 18 stiga hita í dag. Bjartviðri verður um land allt en það þykknar upp á Suðvestur- og Vesturlandi með kvöldinu. Á morgun byrjar að rigna vestantil.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt í dag og bjartviðri, en strekkingur um landið norðvestanvert seinnipartinn. Þykknar upp vestantil í kvöld.
Dálítil væta um landið vestanvert á morgun, annars svipað veður. Víða rigning sunnan- og vestantil annað kvöld. Hiti 9 til 18 stig yfir daginn, hlýjast norðanlands.