Þing­mála­skrá vetrarins: Sann­girnis­bætur, sveitar­stjórnar­lög og sam­félags­miðla­bann - Vísir

Þing­mála­skrá vetrarins: Sann­girnis­bætur, sveitar­stjórnar­lög og sam­félags­miðla­bann - Vísir

Þing­mála­skrá vetrarins: Sann­girnis­bætur, sveitar­stjórnar­lög og sam­félags­miðla­bann - Vísir

Alls eru 146 mál á lista ríkisstjórnarinnar fyrir þingveturinn. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru með fæstu málin, sjö hvor. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ætlar hins vegar að vera afkastameiri og fer inn í veturinn með 26 mál á sinni könnu.

Fréttastofa hefur þingmálaskrána undir höndum en hún verður ekki birt opinberlega fyrr en annað kvöld.

Sanngirnisbætur á borði forsætisráðherra

Kristrún ætlar að leggja til breytingar á lögum um Hagstofu Íslands en hingað til hafa áætlanir stjórnvalda í opinberum fjármálum verið byggðar á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Hagstofan verður hins vegar losuð undan skyldunni og fær Seðlabankinn það hlutverk til að koma í veg fyrir tvíverknað.

Þá hyggst hún leggja fram frumvarp um almennar sanngirnisbætur, einfalda og samræma reglur sem hafa áhrif á stjórnsýsluburði fyrirtækja og einstaklinga og leggja fram þrjár árlegar skýrslur um framkvæmd ályktana, framkvæmd upplýsingalaga og um ráðstöfun lands og landsréttinda. Að lokum ætlar hún að endurflytja frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum.

1. Frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins).


2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007 (brottfall sjálfstæðrar rannsóknareiningar).


3. Frumvarp til laga um almennar sanngirnisbætur.


4. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (einföldun regluverks).


5. Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025.


6. Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga.


7. Skýrsla forsætisráðherra um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi.

Kristrún hóf ræðu sína í morgun á því að ítreka áherslur ríkisstjórnarinnar á hallalaus fjárlög fyrir næsta ár. „Þá erum við að gera þetta á sama tíma og við erum að halda plani varðandi stórfjölgun hjúkrunarrýma, varðandi stóraukið veghald vega, varðandi aukin framlög til heilbrigðismála, við gerðum breytingar eins og Inga hefur áður sagt frá varðandi lífeyrisgreiðslur, að lífeyri fylgi launum.“

Bókun 35 endurflutt

Líkt og þegar var boðað ætlar Þorgerður Katrín utanríkisráðherra að leggja fram bókun 35 á ný. Í samræmi við það er hún með þrjár tillögur um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar á lista hjá sér sem varða meðal annars félagarétt, umhverfismál og orkunýtni.

„Í alþjóðamálum þá verður EES auðvitað lykilþráður, stórt verkefni sem við þurfum að sinna vel, ég mun strax leggja fram mikið réttindamál fyrir fólkið okkar, einstaklinga en líka fyrirtæki sem tryggir þennan réttargrunn EES samningsins, þið þekkið það frumvarp undir heitinu bókun 35,“ sagði hún á blaðamannafundi í morgun.

Sömuleiðis er hún með tvær árlegar skýrslur um annars vegar framkvæmd EES-samningsins og hins vegar um utanríkis- og alþjóðamál. Loks ætlar hún í nóvember að birta skýrslu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands.

Samfélagsmiðlabann og leyfisbréf

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, er með tíu mál á sínu borði þennan þingveturinn. Töluvert var fjallað um fyrirhugað samfélagsmiðlabann en númer tvö á hennar lista er frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum og verður það lagt fram í október.

Hún hyggst einnig breyta lögum um framhaldsskóla, reglum um leyfi til að nota starfsheitið kennari, útivistartíma barna og reglum um brottvísun nemenda úr grunn- og framhaldsskólum. Þrjár nýjar tillögur til þingsályktunar eru á lista Ingu, um framkvæmdaáætlun gegn fátækt barna, um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu og um ungmennastefnu til ársins 2034. Endurflutt verður tillaga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og frumvarp til laga um barnavernd.

Auðlindagjald fyrir ferðamenn

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er með þrettán mál á þingmálaskránni. Ráðherrann leggur til framlengingu búvörusamninga, nútímavæðingu laga um neytendasamninga, frumvarp til laga um markaðseftirlit og frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald. Þar undir fellur svokallað auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum landsins.

Hanna Katrín tekur einnig stórþörungarækt í sjó fyrir og hyggst setja heildstæðan lagaramma um ræktun stórþörunga í sjó. Þá ætlar hún að sníða löggjöf um lagareldi, endurskoða lög um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla og gera breytingar á lögum um bókhald svo það endurspegli þann veruleika sem er til staðar í dag. Loks ætlar ráðherrann að endurskoða fjárhæðir í samkeppnislögum, endurskoða lög um Ferðamálastofu og leggja til breytingar á lögum um velferð dýra.

Breytingar á lögum um ársreikninga og breytingar á lögum um einkahlutafélög og hlutafélög verða endurfluttar fyrir þingið.

1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (stærðarmörk, endurskoðunarmark, skilafrestur o.fl.).


2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (EES-innleiðing).


3. Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum og búnaðar­lögum (framlenging búvörusamninga).


4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um neytendasamninga, nr. 16/2016 (nútímavæðing).


5. Frumvarp til laga um markaðseftirlit.


6. Frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald.


7. Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó.


8. Frumvarp til laga um hafeldi.


9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla (endurskoðun).


10. Frumvarp til laga um bókhald.


11. Frumvarp til laga um breytingu á samkeppnislögum, nr. 44/2005 (veltumörk, samrunagjald o.fl.).


12. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013 (endurskoðun).


13. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ferðamálastofu, nr. 96/2018 (endurskoðun).

Vændiskaup og persónuskilríki

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra stefnir á að leggja fram frumvarp um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum til þess að efla refsivernd vegna brota sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi og rýmka heimildir lögreglu til hinna ýmsu rannsóknaraðgerða.

Hún birti drög að áformum um slíka lagasetningu í síðustu viku en stefnir á leggja fram frumvarp strax í september.

Þá hyggst hún samræma lög um útlendinga við löggjöf Evrópusambandsins og Noregs og skoða útgáfu persónuskilríkja. 

Hún tryggir að Landsréttur megi áfram vera utan Reykjavíkur, skoðar sameiningu sýslumannsembætta og vill leggja fram heildarlög um almannavarnir. Refsirammi vegna vændiskaupa verður þá tekinn fyrir, viðmiðunarfjárhæðir bóta í sakamálum sömuleiðis og dvalarleyfi útlendinga.

Af þrettán málum Þorbjargar eru breytingar á skipun vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara á lista auk skipulagsbreytinga hjá lögreglunni og breytingar á lögum um öryggisþjónustu. Ný heildstæð öryggislög fóru einnig á listann.

1. Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi).


2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (tímabundin vernd vegna fjöldaflótta o.fl.).


3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vegabréf, nr. 136/1998 (útgáfa persónuskilríkja).


4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (staðsetning Landsréttar).


5. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta.


6. Frumvarp til laga um almannavarnir.


7. Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (refsirammi vegna vændiskaupa).


8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (viðmiðunarfjárhæðir).


9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (dvalarleyfi).


10. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (skipun vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara).


11. Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu).


12. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um öryggisþjónustu, nr. 58/1997 (skilyrði, eftirlit, fræðsla o.fl.).


13. Frumvarp til öryggislaga.

Viðurlög við kjarasamningsbrotum

Fjórtán þingmál eru á lista Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Í febrúar hyggst hann leggja fram frumvarp um lögfestingu viðurlaga við brotum á lágmarkskjörum launafólks samkvæmt kjarasamningum. 

Hann vill breyta lögum um almannatryggingar svo þau séu skýrari, húsaleigulögum og um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Ýmsar breytingar verði gerðar á skipulagslögum, lög um mannvirki endurskoðuð og einfölduð og loks verði lög um almennar íbúðir endurskoðuð. Markmið breytingarinnar sé að kerfið stuðli enn frekar að auknu framboði íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.

Þá endurflytur hann nokkur mál. 

Áminningin afnumin

Líkt og kom fram er Daði Már Kristófersson með alls 26 mál á sinni könnu þennan þingveturinn. Í gær kynnti hann fjárlagafrumvarpið og þarf einnig að breyta ýmsum lögum vegna þess. 

Þá hyggst hann afnema áminningu ríkisstarfsmanna, endurskoða núgildandi lög um opinberar framkvæmdir, leggja til breytingar á kílómetragjaldinu og styðja frekar við nýsköpunarfyrirtæki. Daði vill einnig minnka vægi verðtryggingar með breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda.

Lög um starfskjör forstöðumanna komast einnig á lista Daða Más en þar hyggst hann festa í lög fjárhæð launa forstöðumanna ríkisstofnana. Ýmis lög um verðbréfamarkaðinn verða tekin fyrir og sömuleiðis ýmis lög um skatta og gjöld sem varða uppgjörstímabil og innheimtu.

Ekki eru öll málin listuð hér en meðal þeirra eru einföldun á lögum á fjármálamarkaði og breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki.

Tóbaksvarnir og offita

Meðal tólf mála Ölmu Möller heilbrigðisráðherra er frumvarp til laga um tóbaksvarnir, rafrettur og nikótínvörur. Þar leggur hún til breytingar ætlaðar til að draga úr notkun, sér í lagi meðal barna og ungmenna.

Löggjöf um geislavarnir, lög um kynfrumugjafir og notkun þeirra og lög um stafræna heilsu eru öll á dagskrá í október og nóvember. Þar verður stafræn þróun í heilbrigðisþjónustu efld og hámark sett á notkun kynfrumna frá sama kynfrumugjafa.

Aðgerðaáætlun Ölmu um offitu á Íslandi verður endurflutt þar sem lögð er áhersla á almennar lýðheilsuaðgerðir. Þá verður þingsályktunartillaga vegna sjaldgæfra sjúkdóma einnig endurflutt og tvær árlegar skýrslur um framkvæmd heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu.

Hlutlæg ábyrgð eiganda ökutækis og vernd sæstrengja

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra leggur aftur til heildarendurskoðun sveitarstjórnarlaga. Lög um fjarskipti fá sérstaka athygli, annars vegar hyggst Eyjólfur innleiða reglugerð ESB um tímabundna undanþágu frá ePrivacy til að sporna gegn barnaníð á netinu og hins vegar hyggst hann renna styrkari stoðum undir ákvæði sem eiga að vernda fjarskiptagrunninn í sjó. 

Hann stefnir á að leggja fram frumvarp um breytingu á umferðarlögum. Með því verða breytingar lagðar til á gildandi lögum um stöðureiti og gjaldskyldu sem og að lagt verður mat á hvort mæla á fyrir um hlutlæga ábyrgð eiganda ökutækis vegna hraðakstursbrota og brota gegn ákvæðum um stærð og þyngd ökutækja.

Þá ætlar Eyjólfur að leggja fram þingsályktunartillögu um fjarskipta- og netöryggisáætlun fyrir árin 2027 til 2031.

Með tillögunni verði lögð fram heildstæð fjarskipta- og netöryggisáætlun þar sem mörkuð verður stefna um uppbyggingu, viðnámsþrótt og öryggi stafrænna innviða. Áætlunin muni meðal annars fjalla um aðgerðir til að efla áfallaþol fjarskiptakerfa, vernd mikilvægra innviða, samhæfingu stjórnvalda og viðbrögð við aukinni netógn.

Þyngri refsingar vegna höfundarrétarbrota og breytt Ríkisútvarp

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, er með þrettán mál á sinni könnu þennan þingveturinn. Hann hyggst leggja fram frumvarp um breytingar á höfundalögum með það að markmiði að hækka hámarksrefsingu fyrir stórfelld brot á höfundalögum.

Hann ætlar að breyta lögum um Ríkisútvarpið nokkuð mikið. Lagt er til að frá árlegum tekjum af útvarpsgjaldi, samkvæmt fjárveitingu á grundvelli fjárheimildar í fjárlögum, dragist fjárhæð sem svarar til 10 prósent af meðaltekjum Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum næstu fjögur reikningsár á undan, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga samkvæmt vísitölu neysluverðs. 

Þá er lagt til að tekjur Rúv sölu ehf. af sölu viðskiptaboða fari ekki yfir tiltekið hámark. Hámarkið nemi meðaltali auglýsingatekna á næstliðnum fjórum árum, uppreiknuðum á verðlagi greiðsluárs. Loks er lagt til að felldar verði brott kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land.

Þá ætlar Logi að leggja fram frumvarp um bann við tiltekinni notkun gervigreindar, sem varðar djúpfalsanir og fleira, frumvarp um menningarframlag streymisveitna til eflingar íslenskri menningu og tungu og frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

Raforkan áberandi

Loks er það Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sem boðar átján mál á þingvetrinum.

Hann leggur til að sett verði ný heildarlög um loftslagsmál í stað gildandi laga frá 2012 sem hafa tekið margvíslegum breytingum og eru orðin sundurleit. Markmið frumvarpsins er að skýra og útfæra betur ýmis ákvæði laganna og tryggja þannig að framkvæmd þeirra styðji við markmið um kolefnishlutleysi Íslands eigi síðar en árið 2040.

Breytingar á ýmsum lögum á sviði orkumála eru einnig á lista auk breytinga á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina. Umhverfis- og orkustofnun mun fá aukna ábyrgð á sviði varna gegn mengun hafs og stranda og umsagnarskyldu verður breytt í lögum um menningarminjar.

Jóhann Páll vill síðan innleiða ETS2-kerfið sem er hluti af lögum um viðskiptakerfi ESB. Um er að ræða kerfi sem er hliðstætt losunarheimildum sem nær til losunar á flugi en þetta kerfi nær til losunar frá byggingum, vegasamgöngum og smærri iðnaði. Ýmsar breytingar verða gerðar á sömuleiðis á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

Alls konar orkulög verða tekin fyrir, svo sem lög um orkunýtni, raforkulög, raforkuöryggi og um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Þá er á lista þingsályktun um orkuöflunaráætlun fyrir árin 2028-2052. Að lokum hyggst Jóhann Páll leggja fram þingsályktunartillögu um verndar- og orkunýtingaráætlun.

#samfélagsmiðlabann #sanngirnisbætur #sveitarstjórnarlög #vetrarins #þingmálaskrá


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262931854d/thingmalaskra-vetrarins-sanngirnisbaetur-sveitarstjornarlog-og-samfelagsmidlabann

📰 Aðrar fréttir

Höfðatorgsmálið: Myndband sýnir hvernig hvítum Land Rover var ekið á brotaþola á mikilli ferð
📅 08.09.2026 👁️ 0
Höfðatorgsmálið: Myndband sýnir hvernig hvítum Land Rover var ekið á brotaþola á mikilli ferð
Aðalmeðferð í Höfðatorgsmálinu svokallaða er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur en þar eru þrír karlmenn ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallar...
Jökladísirnar frá Hornafirði verða vígðar af heimsforseta Kiwanis
📅 08.09.2026 👁️ 0
Jökladísirnar frá Hornafirði verða vígðar af heimsforseta Kiwanis
Dagana 11.–13.september verður mikið um að vera á Höfn þegar þing Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar fer fram. Þingið sækja Kiwanisfélagar víðs vegar a...
Við­brögð við sláandi PISA-könnun - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Við­brögð við sláandi PISA-könnun - Vísir
Við ræðum við mennta- og barnamálaráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Þá ræðum við einnig við formann Kennarasambands Íslands um sama m...
Ís­land sé með rauða spjaldið í náms­árangri barna - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Ís­land sé með rauða spjaldið í náms­árangri barna - Vísir
Inga kynnti niðurstöðurnar á blaðamannafundi í morgun. Inga sagði þar sumt af því sem kemur fram í niðurstöðunum jákvætt, jákvæðara en hún hafði þorað...
Medical emergency on UK flight to Tenerife South Airport
📅 08.09.2026 👁️ 0
Medical emergency on UK flight to Tenerife South Airport
A flight travelling from Scotland to Tenerife South Airport was given priority to land after a passenger suffered a medical emergency on board.The cre...
Monty Don to leave Gardeners' World after more than 20 years
📅 08.09.2026 👁️ 1
Monty Don to leave Gardeners' World after more than 20 years
The presenter said it had been "deeply rewarding" but added that "now is the right time for a change".
Konunum sagt að halda sig til hlés meðan trúarleiðtogi heimsótti Eiffel
📅 08.09.2026 👁️ 0
Konunum sagt að halda sig til hlés meðan trúarleiðtogi heimsótti Eiffel
Konur sem vinna í Eiffel-turninum voru beðnar um að fara afsíðis og í sumum tilfellum voru karlmenn fengnir til að ganga í störf þeirra á laugardag. Þ...
Bus driver threatened with knife in Puerto del Carmen
📅 08.09.2026 👁️ 1
Bus driver threatened with knife in Puerto del Carmen
Bus drivers in Lanzarote are calling for greater police protection after two incidents involving passengers in the space of a week, including one in w...
„Ef þetta á að vera grín er þetta lé­legt grín“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Ef þetta á að vera grín er þetta lé­legt grín“ - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær mynd á samfélagsmiðlum þar sem Bandaríkin, Kanada, Grænland og Ísland voru öll lituð með bandaríska fánanum...
Argentina to file criminal case against oil company operating in Falklands
📅 08.09.2026 👁️ 0
Argentina to file criminal case against oil company operating in Falklands
The move comes days after President Javier Milei stepped up Argentina's claims of sovereignty over the Falklands.
Óttast afleiðingar uppsagna
📅 08.09.2026 👁️ 1
Óttast afleiðingar uppsagna
Formannaráð BSRB óttast að fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg að undanförnu eigi eftir að leiða til aukins álags á aðra opinbera þjónustu, atvinnuley...
319 milljón króna hönnunarperla sett á sölu í Garðabæ
📅 08.09.2026 👁️ 1
319 milljón króna hönnunarperla sett á sölu í Garðabæ
Fallegt og reisulegt einbýlishús með tvöföldum bílskúr á fallegri lóð með stórbrotnu útsýni í Garðabæ. Um er að ræða hús teiknað af Kjartani Sveinssyn...
Ís­lenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ís­lenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar - Vísir
Halldór greindi frá þessu varðveisluverkefni sínu á Facebook um helgina í kjölfar umræðu um að Sjónvarp Símans myndi styðjast í meira mæli við gervigr...
Karl konungur rýfur þögnina um flutning Harry prins og Markle til Bretlands
📅 08.09.2026 👁️ 1
Karl konungur rýfur þögnina um flutning Harry prins og Markle til Bretlands
Karl konungur sýndi Harry prins og Meghan Markle nokkra hörku þegar hann rauf þögn sína um flutning hjónanna aftur til Bretlands. Samkvæmt bréfi sem f...
„Við megum því ekki fara með gullgæsina út í móa og lóga henni“
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Við megum því ekki fara með gullgæsina út í móa og lóga henni“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, sakar ríkisstjórnina um að vera í mótsögn við sjálfa sig með því a...
Aðal­með­ferð hafin í Höfðatorgsmáli: Mynd­skeið sýnir fórnar­lambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Aðal­með­ferð hafin í Höfðatorgsmáli: Mynd­skeið sýnir fórnar­lambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu - Vísir
Mennirnir þrír Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed sæta ákæru fyrir að hafa í félagi reynt að svipta íslenskan k...
Stjórnvöld bregðast við niðurstöðum PISA
📅 08.09.2026 👁️ 1
Stjórnvöld bregðast við niðurstöðum PISA
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur mál sitt.„Það má segja að við séum með rauða spjaldið þegar kemur að námsárangri barnanna okkar í þei...
Niðurstöður PISA „rauða spjaldið í námsárangri“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Niðurstöður PISA „rauða spjaldið í námsárangri“
Inga segir stórkostlega áskorun vera framundan, ekki síst við að bæta árangur barna í lesskilningi. Hólmfríður María Ragnhildardóttir fréttamaður rædd...
Netöryggissveitin og Seðlabankinn vöktuðu bilun hjá Teya
📅 08.09.2026 👁️ 1
Netöryggissveitin og Seðlabankinn vöktuðu bilun hjá Teya
Netöryggissveit stjórnvalda, CERT-IS, var tilkynnt um bilun í posaþjónustu Teya á laugardaginn. Bilunin varði í sex klukkustundir og olli því að ekki ...
Ás­laug Arna setur lúxusíbúð á leigu - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ás­laug Arna setur lúxusíbúð á leigu - Vísir
Hún laut í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í formannsslag Sjálfstæðisflokksins í febrúar 2025, fór svo í nám í Columbia-háskóla í New York u...
Nottingham attacks victim's death potentially preventable, inquiry hears
📅 08.09.2026 👁️ 1
Nottingham attacks victim's death potentially preventable, inquiry hears
The Nottingham Inquiry hears there was a chance one of Valdo Calocane's victims may have survived.
Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“ Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir færslu Don­ald Trump, þar s...
At least two people dead after Russian strikes on Kyiv
📅 08.09.2026 👁️ 1
At least two people dead after Russian strikes on Kyiv
Air raid alerts and sounds of explosions rang out in Ukraine's capital as Russian forces launched drone strikes early on Tuesday.
Bein út­sending: Niður­stöður PISA-könnunar kynntar - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Niður­stöður PISA-könnunar kynntar - Vísir
Blaðamannafundinn má sjá í beinni útsendingu hér fyrir neðan en fréttamaður okkar Smári Jökull Jónsson verður í Safnahúsinu og mun ræða við Ingu Sælan...
Eimskip á siglingu með arftakaætlun, mentorprógramm og frábærar móttökur fyrir FKA
📅 08.09.2026 👁️ 1
Eimskip á siglingu með arftakaætlun, mentorprógramm og frábærar móttökur fyrir FKA
„Já, hvar skal byrja? Þvílíkar móttökur þar sem við fengum að skoða nútímalegt vinnuumhverfi og kynnast stafrænni vegferð sem Eimskip hefur verið á sí...
Orðið á götunni: Blásið til orrustu í Sjálfstæðisflokknum – Ásdís leggur á ráðin
📅 08.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Blásið til orrustu í Sjálfstæðisflokknum – Ásdís leggur á ráðin
Það er fagnaðarefni að fjármálaráðherra skuli hafa lagt fram fjármálafrumvarp með hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn í mörg ár. Ráðgert er að fjárlög...
Hefndartollar Kanada taka gildi
📅 08.09.2026 👁️ 1
Hefndartollar Kanada taka gildi
Tollar á bandarískar vörur sem yfirvöld í Kanada tilkynntu um fyrir rúmum tveimur vikum taka gildi í dag. Mark Carney forsætisráðherra Kanada tilkynnt...
Kristrún um Trump: Undirtónninn er fáránlegur
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kristrún um Trump: Undirtónninn er fáránlegur
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segja alvarlegt að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi deil...
Helmingur drengja með grunnhæfni í lesskilningi
📅 08.09.2026 👁️ 1
Helmingur drengja með grunnhæfni í lesskilningi
Aðeins helmingur íslenskra drengja býr yfir grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskólagöngu á móti 62% stúlkna.Þetta sýna nýjustu niðurstöður PISA.M...
Múlakaffi stefnir þekktum framkvæmdastjóra vegna hamborgaraskuldar
📅 08.09.2026 👁️ 1
Múlakaffi stefnir þekktum framkvæmdastjóra vegna hamborgaraskuldar
Múlakaffi stefnir þekktum framkvæmdastjóra vegna hamborgaraskuldar Múlakaffi við Hallarmúla Mynd: BHJ Múlakaffi ehf. hefur höfðað mál gegn þekktum fra...
„Við erum að búa til sam­fé­lag hálf­vita“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Við erum að búa til sam­fé­lag hálf­vita“ - Vísir
Rithöfundar og listamenn eru margir hvumsa yfir því að gert sé ráð fyrir því að framlög til Bókasafnssjóðs verði skorin niður samkvæmt fjárlagafrumvar...
Aðalmeðferð í Höfðatorgsmáli hafin
📅 08.09.2026 👁️ 1
Aðalmeðferð í Höfðatorgsmáli hafin
Aðalmeðferð í máli þriggja manna sem ákærðir eru fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. mars fer fram í Héraðsdómi Reykjavíku...
Græn­lensk skips­flauta vakti borgar­búa af værum blundi - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Græn­lensk skips­flauta vakti borgar­búa af værum blundi - Vísir
Flautið byrjaði að óma um vesturhluta borgarinnar um klukkan sex í morgun. Á samfélagsmiðlum töldu sumir að þær minntu helst á þegar Almannavarnir pró...
Meira en fjórðungur nær ekki grunnhæfni á neinu sviði PISA
📅 08.09.2026 👁️ 1
Meira en fjórðungur nær ekki grunnhæfni á neinu sviði PISA
Meira en fjórðungur nær ekki grunnhæfni á neinu sviði PISA Að­eins 56 pró­sent ís­lenskra nem­enda ná grunn­hæfni í lesskiln­ingi, sam­an­bor­ið við 7...
Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins
📅 08.09.2026 👁️ 1
Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins
Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins Gunn­ar Þór Gests­son, sem seldi fyr­ir­tæk­ið sitt til Origo í fyrra, seg­ir það vanda­mál a...
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum í hlutastarfi - Enn hærra hlutfall á Akureyri
📅 08.09.2026 👁️ 1
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum í hlutastarfi - Enn hærra hlutfall á Akureyri
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum starfar þar í hlutastarfi og hlutfallið er enn hærra á Sjúkrahúsinu á Akureyri.Þetta kemur fram í svari Ölmu...
Sláandi niðurstöður í PISA: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja
📅 08.09.2026 👁️ 1
Sláandi niðurstöður í PISA: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja
Árangur grunnskólabarna á Íslandi er verri en nokkru sinni áður, þetta kemur fram í niðurstöðum nýjustu PISA könnunarinnar sem mælir námsárangur barna...
Stjórnarliðar kynna áherslur sínar fyrir þingveturinn
📅 08.09.2026 👁️ 0
Stjórnarliðar kynna áherslur sínar fyrir þingveturinn
Formenn stjórnarflokkanna kynna í dag helstu þingmál ríkisstjórnarinnar ríkisstjórnarinnar á þingvetrinum sem er að hefjast. Þar kemur fram hvaða frum...
Sanngirnisbætur, bókun 35 og 15 ára aldurstakmark að samfélagsmiðlum meðal mála ríkisstjórnarinnar
📅 08.09.2026 👁️ 1
Sanngirnisbætur, bókun 35 og 15 ára aldurstakmark að samfélagsmiðlum meðal mála ríkisstjórnarinnar
Formenn stjórnarflokkanna kynna í dag helstu þingmál ríkisstjórnarinnar á þingvetrinum sem er að hefjast. Þar kemur fram hvaða frumvarpa og þingsálykt...
Allir þeir látnu í bílum sem flug­vélin rann á - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Allir þeir látnu í bílum sem flug­vélin rann á - Vísir
Þau látnu voru farþegar í annars vegar sendiferðabíl frá flugvélaræstingafyrirtæki með sjö manns um borð og hins vegar í jepplingi sem var á ferð fyri...
Bein út­sending: Kynna þingmálaskrá vetursins - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kynna þingmálaskrá vetursins - Vísir
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, og In...
Kynntu þingmálaskrá vetrarins - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kynntu þingmálaskrá vetrarins - Vísir
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, og In...
Netanyahu sagður hafa verið varaður við stórri árás
📅 08.09.2026 👁️ 1
Netanyahu sagður hafa verið varaður við stórri árás
Ráðamenn í Katar fengu ábendingar um það áður en Hamas réðst á Ísrael í október 2023 að samtökin hygðu á óhugnanlega árás og komu þeim á framfæri við ...
Harry and Meghan 'surprised' by King's letter making clear they remain non-working royals
📅 08.09.2026 👁️ 1
Harry and Meghan 'surprised' by King's letter making clear they remain non-working royals
A spokesman says they were not told in advance about the letter sent on behalf of the king, although palace sources deny this.
Chris Rokos: UK's third-biggest taxpayer to leave for Greece
📅 08.09.2026 👁️ 1
Chris Rokos: UK's third-biggest taxpayer to leave for Greece
Chris Rokos plans to open an office in Athens, reports say, and was ranked third in the Sunday Times's list of the UK's top taxpayers.
Hafþór sigraði þrátt fyrir að nýtt heimsmet væri slegið
📅 08.09.2026 👁️ 1
Hafþór sigraði þrátt fyrir að nýtt heimsmet væri slegið
Hafþór Júlíus Björnsson stóð upp sem sigurvegari á aflraunamótinu The Strongman Open & World Deadlift Championships 2026 sem fór fram í Birmingham á E...
Prentarar sífellt vinsælli skotmark tölvuþrjóta
📅 08.09.2026 👁️ 1
Prentarar sífellt vinsælli skotmark tölvuþrjóta
Fyrirtæki vanmeta öryggi tækja eins og prentara, sem getur leitt til rekstrartjóns og gagnaleka, að því er fram kom á ráðstefnu tæknirisans HP.
PISA 2025: Árangur íslenskra nemenda aldrei verið verri
📅 08.09.2026 👁️ 1
PISA 2025: Árangur íslenskra nemenda aldrei verið verri
Niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 sýna verri árangur íslenskra grunnskólabarna en nokkur fyrri PISA-mæling. Niðurstöðurnar eru kynntar í skýrslu sem...
UK pupils rank highly in international reading, maths and science tests
📅 08.09.2026 👁️ 1
UK pupils rank highly in international reading, maths and science tests
But the Pisa test scores vary significantly between England, Northern Ireland, Scotland and Wales.
English pupils ahead of rest of UK in international school tests
📅 08.09.2026 👁️ 0
English pupils ahead of rest of UK in international school tests
The latest Pisa report also warned of a global decline in teenagers' reading skills.