Múlakaffi stefnir þekktum framkvæmdastjóra vegna hamborgaraskuldar

Múlakaffi ehf. hefur höfðað mál gegn þekktum framkvæmdastjóra fyrir Héraðsdómi Reykjaness og krefst þess að hann greiði fyrirtækinu 391.950 krónur vegna ógreidds reiknings fyrir veitingar.
Samkvæmt stefnu, sem birt hefur verið í Lögbirtingablaðinu, má rekja kröfuna til kaupa framkvæmdastjórans á tíu einingum af taco og borgurum. Reikningurinn var gefinn út 25. maí 2025 og hljóðaði upp á 391.950 krónur.
Múlakaffi krefst greiðslu fjárhæðarinnar ásamt dráttarvöxtum frá 25. maí 2025 til greiðsludags. Þá er einnig gerð krafa um málskostnað.
Í stefnunni kemur fram að skuldin hafi ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir. Meðal gagna sem Múlakaffi hyggst leggja fram eru reikningur vegna kaupanna, innheimtuviðvörun frá apríl síðastliðnum og innheimtubréf frá júní.
Stefnan var birt í Lögbirtingablaðinu þar sem framkvæmdastjórinn er skráður óstaðsettur í hús samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Af þeim sökum hafi ekki verið unnt að birta honum stefnuna eftir almennum reglum.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 14. október.