Ís­lenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar - Vísir

Ís­lenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar - Vísir

Ís­lenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar - Vísir

Halldór greindi frá þessu varðveisluverkefni sínu á Facebook um helgina í kjölfar umræðu um að Sjónvarp Símans myndi styðjast í meira mæli við gervigreind við textun á sjónvarpsefni en áður.

„Nú þegar allir eru að tala um íslenskar þýðingar á sjónvarpsefni langar mig að segja frá litlu varðveislulistaverki sem ég gerði fyrir nokkrum árum,“ sagði Halldór í færslu á laugardaginn.

Springfield-búar verða vonandi búnir að jafna sig eftir síðustu mynd.

„Ég ólst upp við Simpsons-fjölskylduna sem hafði verið samviskusamlega tekin upp á VHS úr Sjónvarpinu. Textaþýðinguna gerði Ólafur B. Guðnason og var hún svo snilldarlega gerð og staðfærð að hún ein og sér er bara ótrúlega fyndin og varð fljótt órjúfanlegur hluti þáttanna fyrir mér,“ sagði Halldór.

„Þýðing texta er listform“

„Talandi um virðisaukandi aðgerðir! Ég fór því og athugaði hvað hafði orðið um þýðinguna. Hringdi í Ólaf, sem fann DOS-disketturnar sem hann hafði notað á sínum tíma en því miður voru skrárnar orðnar ólæsilegar. Djúpt í geymslum Stöðvar 2 leyndust svo þessar skrár og ég fékk þær afhentar og kann ég Oddi J. Jónassyni miklar þakkir fyrir það.“

Stóra spurningin var þó hvernig væri best að varðveita sjónvarpsþýðingu. Hann gæti ekki lagt textann yfir þættina sem nú eru á Disney+ og Ólafur þýðandi hefði sjálfur nefnt að þýðingin væri orðin úrelt og að sennilega þyrfti að gera nýja þýðingu fyrir vora tíma.

Textabrot úr tíunda þætti þriðju seríu.

„En mig langaði að minnsta kosti til að geta flett upp í þessu í tíma og ótíma mér til gamans. Ég kann auðvitað flesta þættina utanað svo ég get vel lesið þetta bara af pappír. Úr varð að ég lét binda þýðingar á seríum 1-7 í haganlegt uppflettirit, sem ég lét svo prenta í örfáum eintökum og gaf í jólagjafir (Ólafur fékk að sjálfsögðu eintak líka),“ sagði Halldór.

„Þýðing texta er listform. Gervigreind getur vissulega alltaf hjálpað okkur, en ef við glötum sýninni, hættum að vanda okkur - og ölum komandi kynslóðir upp við óvandað „slop“ sem er ekkert nema vegið meðaltal af *einhverju* - þá erum við að glata svo miklu meiri verðmætum en við gerum okkur grein fyrir.“

Gegnumgangandi snilld hjá Ólafi á gullöld þáttanna

Blaðamaður heyrði hljóðið í Halldóri til að forvitnast frekar um verkefnið og spyrja hann út í hans eftirlætisþýðingar úr þáttunum. Það stóð ekki á svörum og nefndi hann þó nokkuð mörg dæmi, bæði þýðingar á stökum orðum og heilu frösunum.

Fyrst komu upp í hugann „Best í vestrinu. Með innrími!“ sem þýðing á: „Best in the West. That rhymes!“ úr 15. þætti í sjöttu seríu og „Teygju-túli“ sem þýðing á Professor Rubber-Mouth úr tíunda þætti í fimmtu seríu.

Ólafur leysti þessa þýðingu á snjallan hátt.

Allra mesta snilldin að mati Halldórs væri hins vegar „Aís-ilegir“ sem þýðing á „the B-Sharps“ úr fyrsta þætti fimmtu seríu.

„Þýðing á nafni rakarastofukvartetts sem Hómer stofnar en saga hans er skuggalega lík sögu Bítlanna. B-Sharp eða Bís er nóta sem er í raun bara C svo þarna er líka extra tónfræðigrín. Aís-ilegur, eða nótan A#, borið fram eins og Æ. Þannig er bæði tónfræðigrín og einhvers konar þýðing á nafninu. Ótrúlegt afrek!“ sagði Halldór.

Rakarastofukvartettinn Aís-ilegir með Apu, Seymour, Hómer og Barney.

Simpsons-heimurinn er þýddur í heild sinni og nefndi Halldór nokkrar vel heppnaðar þýðingar á nöfnum persóna og staða, svo sem Krulli trúður (Krusty the Clown), Klóri og Klæja (Itchy and Scratchy) og Grænatröð (Evergreen Terrace).

Ólafur hefði haft einstakt lag á að þýða þættina að mati Halldórs.

„Hann hefur eitthvað sérstakt orðfæri sem passar svo fullkomlega við þættina, bara svona smáatriði með hvaða orð hann velur að nota, frekar erfitt að nefna stök dæmi um það því það er bara gegnumgangandi snilld! Hann var einfaldlega frábær í að þýða þessa þætti, á gullöld þeirra,“ segir Halldór.

Einn starfsmaður við þýðingar auk aðkeyptra verktaka

Íslenskar þýðingar á erlendu sjónvarpsefni og kvikmyndum voru mikið til umræðu í síðustu viku eftir að Svavar Knútur hélt því fram að Sjónvarp Símans hefði sagt upp nær öllum þýðendum og myndi í staðinn notast við gervigreind. 

Síminn svaraði gagnrýninni í yfirlýsingu þar sem kom fram að fyrirtækið notaði gervigreind við þýðingar en þeim starfsmanni sem starfaði við þýðingar hefði ekki verið sagt upp og að verktakaþjónusta yrði keypt áfram eftir þörfum.

Hersir Aron er forstöðumaður samskipta og fjárfestatengsla hjá Símanum.Vísir/Anton Brink

„Hjá Símanum er einn starfsmaður við þýðingar á erlendu efni auk þess sem þjónusta verktaka hefur verið keypt eftir þörfum,“ sagði í skriflegu svari Hersis Arons Ólafssonar, forstöðumanns samskipta og fjárfestingatengsla Símans, við fyrirspurn DV

„Þetta fyrirkomulag er óbreytt. Viðkomandi styðjast að sjálfsögðu við nýjustu tækni í sinni vinnu, þ. á m. gervigreind, til að auka bæði afköst og gæði endanlegrar þýðingar,“ sagði jafnframt í svarinu.

Þýðendum af holdi og blóði sé skipt út fyrir gervigreind

Eyvindur Karlsson, sem starfaði sem verktaki við þýðingar hjá Sjónvarpi Símans árin 2005 til 2023 með stuttum hléum, gagnrýndi fyrirtækið fyrir svör þess í Facebook-færslu og sakaði fyrirtækið um orðhengilshátt.

„Þetta er auðvitað bull hjá Símanum,“ sagði Eyvindur í færslunni.

Eyvindur Kárason starfaði lengi sem þýðandi hjá Skjá einum og Sjónvarpi Símans.

„Það er brjálæðisleg einföldun að segja að einn starfsmaður starfi við þýðingar hjá Símanum og þjónusta verktaka sé keypt „eftir þörfum.“ Við erum ansi mörg sem höfum verið að þýða þarna í gegnum tíðina og þetta hefur verið aðallifibrauð flestra okkar. Það er orðhengilsháttur að gera einhvern greinarmun á „uppsögn“ og því að hætta að nýta þjónustu verktaka sem margir hafa verið með föst þýðingarverkefni árum og jafnvel áratugum saman,“ sagði hann jafnframt.

Samkvæmt heimildum DV hefur fjöldi verktaka rokkað hjá Símanum í gegnum tíðina og oftast hafi þeir verið á bilinu fimm til tíu með föst verkefni á hverjum tíma.

„Og það breytir ekki þeirri staðreynd að verið er að skipta þýðendum af holdi og blóði út fyrir gervigreind. Finnst okkur það bara í lagi?“ spurði Eyvindur í færslunni.

„Atlaga gegn móðurmálinu okkar“

Hann benti á að fjarskiptalög leggi ákveðnar kvaðir á fjölmiðla um að standa vörð um tungumálið. Síminn hafi áður notað gervigreindartexta í lýsingum á efnisveitu sinni og nú virðist sem þau ætli að fara sömu leið í þýðingum.

„Fyrir utan það að þarna er verið að taka spón úr aski skapandi fólks, sem þarf einhvern veginn alltaf að vera fyrsta verkefni gervigreindarinnar, þá finnst mér þetta vera atlaga gegn móðurmálinu okkar,“ sagði Eyvindur. 

„Öll sem hafa séð vélþýðingar vita að þær eru alltaf slappar. Blæbrigði týnast, orðagrín misskilst, menningarlegar vísanir klúðrast o.s.frv. Ég vinn töluvert með gervigreind sjálfur og hef ágætis hugmynd um hvað hún getur og getur ekki - og þýðingar eru eitt af því sem hún getur ekki. Jafnvel þótt einn eða tveir starfsmenn verði með einhverja yfirsýn yfir þetta er borðleggjandi að það verður ekki hægt að hafa almennilegt gæðaeftirlit með þessu, til þess er magnið einfaldlega of mikið,“ sagði hann.

Eyvindur sagði þetta vera ömurlega þróun og spurði hvort það samræmdist anda laganna sem krefjast þess að efni sé textað.

„Kannski er öllum sama. Kannski erum við bara búin að gefast upp á að standa vörð um það. Þá er reyndar alveg jafn gott að hætta bara þýðingum yfirhöfuð. Betra að leyfa íslenskunni að deyja út en að leyfa gervigreindinni að gera hana úrkynjaða,“ sagði hann að lokum.

#bók #simpsons #teygju #íslenskar #þýðingar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262931419d/is-lenskar-simpsons-thydingar-i-bok-teygju-tuli-ekki-a-faeri-gervigreindarinnar

📰 Aðrar fréttir

Þing­mála­skrá vetrarins: Sann­girnis­bætur, sveitar­stjórnar­lög og sam­félags­miðla­bann - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Þing­mála­skrá vetrarins: Sann­girnis­bætur, sveitar­stjórnar­lög og sam­félags­miðla­bann - Vísir
Alls eru 146 mál á lista ríkisstjórnarinnar fyrir þingveturinn. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðh...
Höfðatorgsmálið: Myndband sýnir hvernig hvítum Land Rover var ekið á brotaþola á mikilli ferð
📅 08.09.2026 👁️ 0
Höfðatorgsmálið: Myndband sýnir hvernig hvítum Land Rover var ekið á brotaþola á mikilli ferð
Aðalmeðferð í Höfðatorgsmálinu svokallaða er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur en þar eru þrír karlmenn ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallar...
Jökladísirnar frá Hornafirði verða vígðar af heimsforseta Kiwanis
📅 08.09.2026 👁️ 0
Jökladísirnar frá Hornafirði verða vígðar af heimsforseta Kiwanis
Dagana 11.–13.september verður mikið um að vera á Höfn þegar þing Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar fer fram. Þingið sækja Kiwanisfélagar víðs vegar a...
Við­brögð við sláandi PISA-könnun - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Við­brögð við sláandi PISA-könnun - Vísir
Við ræðum við mennta- og barnamálaráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Þá ræðum við einnig við formann Kennarasambands Íslands um sama m...
Ís­land sé með rauða spjaldið í náms­árangri barna - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Ís­land sé með rauða spjaldið í náms­árangri barna - Vísir
Inga kynnti niðurstöðurnar á blaðamannafundi í morgun. Inga sagði þar sumt af því sem kemur fram í niðurstöðunum jákvætt, jákvæðara en hún hafði þorað...
„Ef þetta á að vera grín er þetta lé­legt grín“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
„Ef þetta á að vera grín er þetta lé­legt grín“ - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær mynd á samfélagsmiðlum þar sem Bandaríkin, Kanada, Grænland og Ísland voru öll lituð með bandaríska fánanum...
Óttast afleiðingar uppsagna
📅 08.09.2026 👁️ 1
Óttast afleiðingar uppsagna
Formannaráð BSRB óttast að fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg að undanförnu eigi eftir að leiða til aukins álags á aðra opinbera þjónustu, atvinnuley...
319 milljón króna hönnunarperla sett á sölu í Garðabæ
📅 08.09.2026 👁️ 1
319 milljón króna hönnunarperla sett á sölu í Garðabæ
Fallegt og reisulegt einbýlishús með tvöföldum bílskúr á fallegri lóð með stórbrotnu útsýni í Garðabæ. Um er að ræða hús teiknað af Kjartani Sveinssyn...
Karl konungur rýfur þögnina um flutning Harry prins og Markle til Bretlands
📅 08.09.2026 👁️ 0
Karl konungur rýfur þögnina um flutning Harry prins og Markle til Bretlands
Karl konungur sýndi Harry prins og Meghan Markle nokkra hörku þegar hann rauf þögn sína um flutning hjónanna aftur til Bretlands. Samkvæmt bréfi sem f...
„Við megum því ekki fara með gullgæsina út í móa og lóga henni“
📅 08.09.2026 👁️ 0
„Við megum því ekki fara með gullgæsina út í móa og lóga henni“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, sakar ríkisstjórnina um að vera í mótsögn við sjálfa sig með því a...
Aðal­með­ferð hafin í Höfðatorgsmáli: Mynd­skeið sýnir fórnar­lambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Aðal­með­ferð hafin í Höfðatorgsmáli: Mynd­skeið sýnir fórnar­lambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu - Vísir
Mennirnir þrír Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed sæta ákæru fyrir að hafa í félagi reynt að svipta íslenskan k...
Stjórnvöld bregðast við niðurstöðum PISA
📅 08.09.2026 👁️ 1
Stjórnvöld bregðast við niðurstöðum PISA
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur mál sitt.„Það má segja að við séum með rauða spjaldið þegar kemur að námsárangri barnanna okkar í þei...
Niðurstöður PISA „rauða spjaldið í námsárangri“
📅 08.09.2026 👁️ 0
Niðurstöður PISA „rauða spjaldið í námsárangri“
Inga segir stórkostlega áskorun vera framundan, ekki síst við að bæta árangur barna í lesskilningi. Hólmfríður María Ragnhildardóttir fréttamaður rædd...
Netöryggissveitin og Seðlabankinn vöktuðu bilun hjá Teya
📅 08.09.2026 👁️ 1
Netöryggissveitin og Seðlabankinn vöktuðu bilun hjá Teya
Netöryggissveit stjórnvalda, CERT-IS, var tilkynnt um bilun í posaþjónustu Teya á laugardaginn. Bilunin varði í sex klukkustundir og olli því að ekki ...
Ás­laug Arna setur lúxusíbúð á leigu - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ás­laug Arna setur lúxusíbúð á leigu - Vísir
Hún laut í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í formannsslag Sjálfstæðisflokksins í febrúar 2025, fór svo í nám í Columbia-háskóla í New York u...
Nottingham attacks victim's death potentially preventable, inquiry hears
📅 08.09.2026 👁️ 1
Nottingham attacks victim's death potentially preventable, inquiry hears
The Nottingham Inquiry hears there was a chance one of Valdo Calocane's victims may have survived.
Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“ Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir færslu Don­ald Trump, þar s...
At least two people dead after Russian strikes on Kyiv
📅 08.09.2026 👁️ 1
At least two people dead after Russian strikes on Kyiv
Air raid alerts and sounds of explosions rang out in Ukraine's capital as Russian forces launched drone strikes early on Tuesday.
Bein út­sending: Niður­stöður PISA-könnunar kynntar - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Niður­stöður PISA-könnunar kynntar - Vísir
Blaðamannafundinn má sjá í beinni útsendingu hér fyrir neðan en fréttamaður okkar Smári Jökull Jónsson verður í Safnahúsinu og mun ræða við Ingu Sælan...
Eimskip á siglingu með arftakaætlun, mentorprógramm og frábærar móttökur fyrir FKA
📅 08.09.2026 👁️ 1
Eimskip á siglingu með arftakaætlun, mentorprógramm og frábærar móttökur fyrir FKA
„Já, hvar skal byrja? Þvílíkar móttökur þar sem við fengum að skoða nútímalegt vinnuumhverfi og kynnast stafrænni vegferð sem Eimskip hefur verið á sí...
Orðið á götunni: Blásið til orrustu í Sjálfstæðisflokknum – Ásdís leggur á ráðin
📅 08.09.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Blásið til orrustu í Sjálfstæðisflokknum – Ásdís leggur á ráðin
Það er fagnaðarefni að fjármálaráðherra skuli hafa lagt fram fjármálafrumvarp með hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn í mörg ár. Ráðgert er að fjárlög...
Hefndartollar Kanada taka gildi
📅 08.09.2026 👁️ 1
Hefndartollar Kanada taka gildi
Tollar á bandarískar vörur sem yfirvöld í Kanada tilkynntu um fyrir rúmum tveimur vikum taka gildi í dag. Mark Carney forsætisráðherra Kanada tilkynnt...
Kristrún um Trump: Undirtónninn er fáránlegur
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kristrún um Trump: Undirtónninn er fáránlegur
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segja alvarlegt að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi deil...
Helmingur drengja með grunnhæfni í lesskilningi
📅 08.09.2026 👁️ 1
Helmingur drengja með grunnhæfni í lesskilningi
Aðeins helmingur íslenskra drengja býr yfir grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskólagöngu á móti 62% stúlkna.Þetta sýna nýjustu niðurstöður PISA.M...
„Við erum að búa til sam­fé­lag hálf­vita“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Við erum að búa til sam­fé­lag hálf­vita“ - Vísir
Rithöfundar og listamenn eru margir hvumsa yfir því að gert sé ráð fyrir því að framlög til Bókasafnssjóðs verði skorin niður samkvæmt fjárlagafrumvar...
Aðalmeðferð í Höfðatorgsmáli hafin
📅 08.09.2026 👁️ 1
Aðalmeðferð í Höfðatorgsmáli hafin
Aðalmeðferð í máli þriggja manna sem ákærðir eru fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. mars fer fram í Héraðsdómi Reykjavíku...
Græn­lensk skips­flauta vakti borgar­búa af værum blundi - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Græn­lensk skips­flauta vakti borgar­búa af værum blundi - Vísir
Flautið byrjaði að óma um vesturhluta borgarinnar um klukkan sex í morgun. Á samfélagsmiðlum töldu sumir að þær minntu helst á þegar Almannavarnir pró...
Meira en fjórðungur nær ekki grunnhæfni á neinu sviði PISA
📅 08.09.2026 👁️ 1
Meira en fjórðungur nær ekki grunnhæfni á neinu sviði PISA
Meira en fjórðungur nær ekki grunnhæfni á neinu sviði PISA Að­eins 56 pró­sent ís­lenskra nem­enda ná grunn­hæfni í lesskiln­ingi, sam­an­bor­ið við 7...
Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins
📅 08.09.2026 👁️ 1
Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins
Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins Gunn­ar Þór Gests­son, sem seldi fyr­ir­tæk­ið sitt til Origo í fyrra, seg­ir það vanda­mál a...
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum í hlutastarfi - Enn hærra hlutfall á Akureyri
📅 08.09.2026 👁️ 1
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum í hlutastarfi - Enn hærra hlutfall á Akureyri
Meira en helmingur lækna á Landspítalanum starfar þar í hlutastarfi og hlutfallið er enn hærra á Sjúkrahúsinu á Akureyri.Þetta kemur fram í svari Ölmu...
Sláandi niðurstöður í PISA: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja
📅 08.09.2026 👁️ 1
Sláandi niðurstöður í PISA: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja
Árangur grunnskólabarna á Íslandi er verri en nokkru sinni áður, þetta kemur fram í niðurstöðum nýjustu PISA könnunarinnar sem mælir námsárangur barna...
Stjórnarliðar kynna áherslur sínar fyrir þingveturinn
📅 08.09.2026 👁️ 0
Stjórnarliðar kynna áherslur sínar fyrir þingveturinn
Formenn stjórnarflokkanna kynna í dag helstu þingmál ríkisstjórnarinnar ríkisstjórnarinnar á þingvetrinum sem er að hefjast. Þar kemur fram hvaða frum...
Sanngirnisbætur, bókun 35 og 15 ára aldurstakmark að samfélagsmiðlum meðal mála ríkisstjórnarinnar
📅 08.09.2026 👁️ 0
Sanngirnisbætur, bókun 35 og 15 ára aldurstakmark að samfélagsmiðlum meðal mála ríkisstjórnarinnar
Formenn stjórnarflokkanna kynna í dag helstu þingmál ríkisstjórnarinnar á þingvetrinum sem er að hefjast. Þar kemur fram hvaða frumvarpa og þingsálykt...
Allir þeir látnu í bílum sem flug­vélin rann á - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Allir þeir látnu í bílum sem flug­vélin rann á - Vísir
Þau látnu voru farþegar í annars vegar sendiferðabíl frá flugvélaræstingafyrirtæki með sjö manns um borð og hins vegar í jepplingi sem var á ferð fyri...
Bein út­sending: Kynna þingmálaskrá vetursins - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kynna þingmálaskrá vetursins - Vísir
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, og In...
Kynntu þingmálaskrá vetrarins - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kynntu þingmálaskrá vetrarins - Vísir
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, og In...
Netanyahu sagður hafa verið varaður við stórri árás
📅 08.09.2026 👁️ 1
Netanyahu sagður hafa verið varaður við stórri árás
Ráðamenn í Katar fengu ábendingar um það áður en Hamas réðst á Ísrael í október 2023 að samtökin hygðu á óhugnanlega árás og komu þeim á framfæri við ...
Harry and Meghan 'surprised' by King's letter making clear they remain non-working royals
📅 08.09.2026 👁️ 1
Harry and Meghan 'surprised' by King's letter making clear they remain non-working royals
A spokesman says they were not told in advance about the letter sent on behalf of the king, although palace sources deny this.
Chris Rokos: UK's third-biggest taxpayer to leave for Greece
📅 08.09.2026 👁️ 1
Chris Rokos: UK's third-biggest taxpayer to leave for Greece
Chris Rokos plans to open an office in Athens, reports say, and was ranked third in the Sunday Times's list of the UK's top taxpayers.
Hafþór sigraði þrátt fyrir að nýtt heimsmet væri slegið
📅 08.09.2026 👁️ 1
Hafþór sigraði þrátt fyrir að nýtt heimsmet væri slegið
Hafþór Júlíus Björnsson stóð upp sem sigurvegari á aflraunamótinu The Strongman Open & World Deadlift Championships 2026 sem fór fram í Birmingham á E...
Prentarar sífellt vinsælli skotmark tölvuþrjóta
📅 08.09.2026 👁️ 1
Prentarar sífellt vinsælli skotmark tölvuþrjóta
Fyrirtæki vanmeta öryggi tækja eins og prentara, sem getur leitt til rekstrartjóns og gagnaleka, að því er fram kom á ráðstefnu tæknirisans HP.
PISA 2025: Árangur íslenskra nemenda aldrei verið verri
📅 08.09.2026 👁️ 1
PISA 2025: Árangur íslenskra nemenda aldrei verið verri
Niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 sýna verri árangur íslenskra grunnskólabarna en nokkur fyrri PISA-mæling. Niðurstöðurnar eru kynntar í skýrslu sem...
UK pupils rank highly in international reading, maths and science tests
📅 08.09.2026 👁️ 1
UK pupils rank highly in international reading, maths and science tests
But the Pisa test scores vary significantly between England, Northern Ireland, Scotland and Wales.
Dýr­mætum lista­verkum stolið af safni Renoir - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Dýr­mætum lista­verkum stolið af safni Renoir - Vísir
Safnið er í bænum Cagnes-sur-Mer sem er skammt frá borginni Nice í suðurhluta Frakklands. Bryan Masson, bæjarstjóri Cagnes-sur-Mer, vaknaði rétt fyrir...
Ný PISA-könnun: Enn versnar staða ís­lenskra ung­linga - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ný PISA-könnun: Enn versnar staða ís­lenskra ung­linga - Vísir
Niðurstöðurnar koma fram í skýrslu PISA sem birt var í morgun en um er að ræða könnun sem lögð var fyrir nemendur 10. bekkjar í mars og apríl 2025. Kö...
Starfs­menn í verk­fall eftir heim­sókn trúar­hóps - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Starfs­menn í verk­fall eftir heim­sókn trúar­hóps - Vísir
Á laugardag heimsóttu hundrað meðlimir trúarhóps af hindúatrú Eiffelturninn en um helgina opnaði hópurinn sína fyrstu trúarmiðstöð í París. Þegar meðl...
Ísland þvert á flokka vill að Þorgerður Katrín segi af sér
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ísland þvert á flokka vill að Þorgerður Katrín segi af sér
Rúmlega 1.600 höfðu skrifað undir áskorun upp úr klukkan sjö í morgun þess efnis að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segi af sér sem utanríkisráðherra o...
Rólegheitaveður víðast hvar
📅 08.09.2026 👁️ 1
Rólegheitaveður víðast hvar
Norðlendingar geta búist við allt að 18 stiga hita í dag. Bjartviðri verður um land allt en það þykknar upp á Suðvestur- og Vesturlandi með kvöldinu. ...
TITSA changes Tenerife bus timetables and launches new direct Costa Adeje route
📅 08.09.2026 👁️ 1
TITSA changes Tenerife bus timetables and launches new direct Costa Adeje route
TITSA has introduced its winter bus schedules across Tenerife following the end of the main summer season, bringing timetable changes to numerous rout...
Vel heppnuð þögn, mis­heppnaður Mahler - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Vel heppnuð þögn, mis­heppnaður Mahler - Vísir
Þetta verk var á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í Hörpu á fimmtudagskvöldið. Þeir mörkuðu upphaf vetrarstarfsins. Barbara Hannigan e...