Netöryggissveit stjórnvalda, CERT-IS, var tilkynnt um bilun í posaþjónustu Teya á laugardaginn. Bilunin varði í sex klukkustundir og olli því að ekki var hægt að greiða með greiðslukortum í postum sem tengdir voru við kassakerfi, hjá fjölda fyrirtækja og langar biðraðir mynduðust í verslunum. Bilunin var ekki af völdum netárásar, samkvæmt upplýsingum frá CERT-IS. Fyrirtækjum eins og Teya er samt sem áður skylt að tilkynna slíkt öryggisatvik til CERT-IS.
Seðlabankinn fylgdist með atburðarás á laugardag vegna bilunarinnar hjá Teya eins og jafnan þegar upp koma atvik og rekstrartruflanir í greiðslumiðlun, segir í svari Seðlabankans við fyrirspurn fréttastofu. Atvikamiðstöð fjármálakerfisins, sem er í eigu Seðlabankans og Reiknistofu bankanna, mat áhrif á rekstrartruflunarinnar á fjármálakerfið í heild.
Eftirskyldum aðilum, eins og Teya í þessu tilfelli, er skylt að tilkynna um alvarleg atvik sem tengjast upplýsinga- og fjarskiptatækni til fjármálaeftirlits Seðlabankans, eins og kveður á um í lögum um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar og fylgir bankinn tilkynningum eftir.