„Já, hvar skal byrja? Þvílíkar móttökur þar sem við fengum að skoða nútímalegt vinnuumhverfi og kynnast stafrænni vegferð sem Eimskip hefur verið á síðustu misserin,“ segir Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir formaður FKA eftir stórglæsilegan Opnunarviðburð Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA hjá Eimskip. „Það var frábært að anda að sér menningunni og verja tíma með félagskonum,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA.
Eimskip á siglingu með arftakaætlun, mentorprógramm og frábærar móttökur fyrir FKA