Aðalmeðferð í máli þriggja manna sem ákærðir eru fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. mars fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Fram kom í máli dómara að aðalmeðferðin hefði hafist með vettvangsferð í bílakjallarann í dag.
Tveir sakborninganna eru mættir í dómssal í dag og sá þriðji er erlendis og viðstaddur í gegnum fjarfundarbúnað.
Í ákærunni er einum mannanna gefið að sök að hafa ekið Land Rover-bifreið á manninn á mikilli ferð, öðrum að hafa barið hann ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi, og hinum þriðja að hafa stungið manninn í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni.
Í ákærunni segir að brotaþoli hafi verið settur í lífshættulegt ástand, hlotið sár í húðberi vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á upphandleggsbeini, mar, bólgur, fleiðusár og eymsli.