Formannaráð BSRB óttast að fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg að undanförnu eigi eftir að leiða til aukins álags á aðra opinbera þjónustu, atvinnuleysis, félagslegs vanda og aukins ójöfnuðar.
Þetta kemur fram í ályktun formannaráðsins sem mótmælir uppsögnum og segir þær leiða til skertrar þjónustu. Ráðið segir að ekki sé búið að opinbera neinar þær greiningar sem skýri eða réttlæti þjónustuskerðingu. Ekki hafi heldur verið sýnt fram á að tilefni sé til fjöldauppsagna.